Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
io5
Vellejusar kaupmanns, og seinna Sveinbjarnar Jakobsens, en nú
er það hús rifið og skíðgarður kominn í staöinn; þetta svæði er
líka eign Fischers verzlunar. — Paðan í röðinni til hægri handar
er hús það, er Pórður Jónassen átti, háytirdómari, og bjó þar
langa æfi; þar andaðist hann; var húsið þá einloftað, en
allsnot-urt og vel bygt; síðan keypd Sigurður Jonsson það, járnsmiður,
og bygði ofan á það og svo enn annað hús í garðinum, og setti
þar mikla járnsmiðju. Frá íveruhúsi Siguröar sést eftir endilöngu
Austurstræti og upp á Bankastíg. Par gagnvart er »Hótel Island«
og útbyggingar þess, og þar yzt litið hús, sem áður var
sölu-kompa, en hefur orðið »heirnsfræg«, af því þar bjó John Coghill,
sá nafnfrægi hrossakaupmaður, sem öldurnar sungu yfir á
Atlanz-hati. Pá er Vallarstræti, og er þar á horninu verzlunarhús
Brynj-ólfs Bjarnarsonar kaupmanns, stórt hús tvíloftað og snýr gaflinn
að Aðalstræti, og þar eru dyrnar inn til verzlunarinnar; var þetta
hús bygt af þeim frændum Jóni Vídalín (nú enskum konsúl) og
Páli Eggerz, sem dó í Ameríku, og var það þá nefnt
»frænda-húsið« og »frændaverzlunin«. Par gagnvart er hið
stórkostleg-asta íbúöarhús bæjarins, Breiðfjörðshús, þríloftað, með svölum
framan á, og eru þær bornar af járnbitum, svo ekki þarf að
ótt-ast að þær bili; þar er verzlun Breiöfjörðs neðst í húsinu og
stein-steypt stétt fyrir framan; en húsið liggur á horninu á Aðalstræti
og Bröttugötu, og er þar inngangur til leikhúss þess, er
Breið-fjörð hefur látið gera þar, og er það eindæmi af einum einstökum
manni; þar hefur oft verið leikið og fundir haldnir og ýmsar
sam-komur. Forgarðurinn út til Bröttugötú er margar älnir á hæð
og glerþak yfir, og er hvergi annað eins hér. í þessu húsi eru
mörg herbergi og salir, sem nærri má geta; en þetta hefur
Breið-fjörð bygt sjálfur (því hann er bæöi smiður og kaupmaður) upp
úr hinu gamla »Hákonsenshúsi«, sem ísleifur etazráð lét byggja
handa systur sinni, sem var gift Einari Hákonsen hattasmið, og
bjuggu þau hjón þar lengi. Ágætt efni var í húsinu, eins og
ann-ars í þessum gömlu húsum, en það féll samt meir og meir og varö
óálitlegt með tímanum, þangaö til það fékk upprisunnar dýrð fyrir
Breiöfjörðs kraft. Par í einni stofu hefur Jónas Hallgrímsson búið,
og þar sneri hann Úrsíns stjörnufræöi og orti »Dagrúnarharm«
eftir boði Helga biskups, en Helgi sendi Jónasi tvær portvínsflöskur
fullar til launa. — í þessu húsi uppi á lofti andaöist Sigurður Breið-
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>