- Project Runeberg -  Eimreiðin / VI. Ár, 1900 /
104

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

io4

menn. Seinna varð húsiö eign Þorfinns Jónatanssónar kaupmanns;
eftir hann kom Þorlákur Johnson og råk þar fjöruga verzlun
nokkur ár. Nú býr Holger Clausen í fyrra húsinu, en verzlar í
þessu síðar nefnda. Pá eru vöruhús óálitleg og kumbaldar, en
síðan kemur stórt hús og álitlegt, sem var sölubúð Hannesar
John-sens, Steingrímssonar biskups, og var hann þar kaupmaður mörg
ár, en Símon Johnsen sonur hans tók við eftir hann. Seinast
verzlaði þar Jóhannes Hansen, en andaðist eftir stuttan tíma í
íbúðarhúsi Hannesar, sem er þar við hliðina; þar önduðust þeir og
báðir, Hannes og Símon. Petta hús er fyrsta húsið í Veltusundí,
en þar gagnvart er gamalt hús, lágt og fornfálegt, nú óbygt, en
hefur áður verið snoturt, því að þar var aðsetur Havsteens
kaupmanns, sem átti bæði það og verzlunarhúsin þar sem nú er
Brydes-búð; hún er bygð upp að nýju og eru þar stór og vönduð
her-bergi bæði fyrir verzlun og bústað; en alt þetta átti áður íslenzkur
kaupmaður, Pétur Jonsson, norðlenzkur, kallaður »Petersen«, en
hann bjó sjálfur í Kaupmannahöfn og kölluðu Islendingar hann
»Káetu-Pétur«.

Pá höldum vér í vestur og norður frá þessum húsum og út
að sjónum, þar er »Bryggjuhúsið«, mikil bygging með porti
gegn-um alt húsið, og liggur bryggja þar í gegnum og í sjó út;
þetta hús var fyrrum bygt handa póstgufuskipunum og átti að
aka öllum hinum útlenzku gæðum og sendingum með makt og
miklu veldi upp í höfuðborgina; liklega hefur þetta veriö gert á
kostnað gufuskipafélagsins, svona á morgunstundu framfaranna, en
þetta hefur ekki staðið lengi, því að nú er húsið eign Fischers
verzlunar. Pá er vér stöndum þar í portinu, sjáum vér eftir
endi-löngu Abalstrœti, og er »Herkastalinn« við hinn endann. Pá er
fyrst til hægri handar og á horninu á Aðalstræti og Hafnarstæti
lágt hús, óálitlegt, sem áður var kent við Sunckenbergs verzlun,
en varð seinna eign Eggerts Waage kaupmanns; seinna verzlaöi
Matthías Johannesen þar og bætti húsið allmikið; en síðan keypti
Brydes verzlun það og var þar ruslaverzlun um tíma, eða er enn.
Par gagnvart er allmikiö hús tvíloftað, sem Tærgesen kaupmaður
lét byggja upp úr gömlu húsi, og þótti það þá einna mikilhæfast
hér í bænum; nú er þar hin alkunna Fischers verzlun, og hefur
veriö þar um mörg ár. Petta hús snýr aö Aðalstræti, og er á
horninu þeirrar götu og Fischerssunds, en hinumegin eru
vöru-geymsluhús verzlunarinnar; þar á horninu var áöur íbúöarhús

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:05:04 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1900/0110.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free