Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
111
Breiðfjörðs húsi því hinu mikla, sem áöur er talið. —
Fischers-sund liggur á milli Fischers verzlunarhúss og vöruhúsa þeirra, sem
verzlunin á; þar eru engin íbúðarhús aö neðanverðu í sundinu, en
ofar er bökunarhús Fridriksens bakara, þar sem áður var Jensen
bakari. Upp úr Fischers-sundi er gata nokkur og liggur upp að
»Nýjabæ«, hann er við Geirs-tún, en er nú fallinn; þar er íshús
mikið, er Geir hefur bygt handa sér; en nokkuð neðar er hús
Guðmundar Olsens verzlunarstjóra, nýtt og mjög snoturt. Par
gagnvart er steinhús eitt, sem kallast Hákonarbær, þar var
torf-bær áður. — Pá er vér komum fyrir hornið á bökunarhúsinu,
tekur sú gata við, er Mjósund nefnist, þverbeint á þessum þrem
síðast nefndu götum; þar er til vinstri handar »Vinaminni«, er
Sigríður Einarsdóttir lét byggja, kona Eiríks Magnússonar meistara
í Cambridge; það er stór bygging og hvergi eins hátt undir loft
í nokkru prívathúsi í bænum; þar eru stórir salir og alt
mikil-mannlegt og bygt upp á ensku. Þar rétt fyrir neðan var áður
»Brekkubær«, þar sem Sigríður var fædd, og lét hún byggja þetta
mikla hús til minningar um hinn foma og horfna æskustað, þar
sem hún hafði skemt með söng og gleði oss og mörgum, sem
segir í «Tólf álna kvæðinu«. Annars býr enginn i Vinaminni að
staðaldri, nema María Einarsdóttir, systir frú Sigríðar, en þar hefur
Kristján assessor búið, og þar býr Jón Vídalín konsúll á sumrin.
Þar gagnvart er lágt hús og fornfálegt, eign Hansens hattara;
það var fyrst bygt af Snæbirni Benediktssyni verzlunarmanni, sem
först með öðrum á »Sölöven«, og var húsið þá miklu minna, en
hefur síðan verið lengt, og ávalt lélegt. Par í götunni eru og
nokkur fleiri hús, sem ekki þykir vert að telja.
GLASGOW er afarmikil bygging gagnvart bökunarhúsi
Fridriksens, en liggur eiginlega ekki i neinni götu. I’etta hús var bygt
um 1860, þar sem áður stóð »Borgarabærinn«, sem átti Þórður
borgari, faðir þeirra bræðra Guðmundar og Siguröar, einhverra
helztu alþýðumanna hér. I’ar var þetta mikla hús reist af tveimur
Englendingum, Henderson og Anderson, og kallað »Glasgow«
eftir stórborg á Skotiandi með því nafni (en fólk hér kallar það
»glerskó« eða »glerskóg«, til þess að fá eitthvert vit í nafnið,
ósjálfrátt), því þeir munu hafa þaðan veriö. Par var þá stofnuð
einhver hin mesta og haganlegasta verzlun, sem hér hefur veriö,
og alt út búið sem bezt mátti verða, járnbrautir lagðar frá húsinu
og ofan að sjó og út á bryggjur, og vörunum ekið á þar til gerð-
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>