- Project Runeberg -  Eimreiðin / VI. Ár, 1900 /
112

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

112

um vögnum og hjólsleðum; en þessi dýrð stóð ekki lengi, því að
eigendurnir settu íslenzka menn fyrir verzlunina, og varö þeim
ekki ráðafátt aö koma öllu fyrir kattarnef; var húsið eftir það
nokkra stund eigendalaust að kalla, eða í eyði, þangað til Egill
Egilsson keypti það fyrir 12000 krónur (hefði nokkur stefna verið
þá komin á hugsunarhátt manna hér, þá hefði mátt fá þetta hús
handa söfnunum fyrir gjafverð). far bjó Egill eitthvað 12 ár í
suðurenda hússins uppi, en leigði ýmsum út, bæði kaupmönnum
og embættismönnum, því nóg var af sölum og herbergjum; þar
bjó Lárus Sveinbjörnsson, sem þá var bæjarfógeti; Jón Hjaltalin
landlæknir; Halldór Danielsson bæjarfógeti; þessir bjuggu allir hver
eftir annan í suður-endanum niðri, en hitt var leigt ýmsum til
verzl-unar og vörugeymslu; þar í stórum sal niðri var
»Sjómannaklúbb-urinn« um hríð; þar var og verzlun Eggerts Gunnarssonar, og
Gunnlaugs Hriems (fyrir Englendinga); verzlun råk og Jón
Guðna-son í norður-endanum alllengi; í miðri byggingunni hafði Löve
lengi klæöa- og fataverzlun, uppi og niðri. I salnum niðri voru
stundum sjónleikir og skemtanir. Pá hefur »Glasgow« gefið
tölu-vert af sér, en þetta hætti smám saman, svo húsið varð þung
byrði fyrir einn mann, og þá skifti Egill þvi við Þórð Jonsson
út-vegsbónda fyrir »Garðana«. í Pórðar tíð bjó Tryggvi bankastjóri
þar sem Egill hafði búið, en herbergjaskipun hefur verið breytt
allmikið; býr Tryggvi þar enn í stórum og skrautlegum
herbergjum. Pá var og náttúrugripasafnið flutt upp í Glasgow i stóra
sai-inn uppi á loftinu í miðbyggingunni; en eftir nokkurn tíma keypti
Einar Benediktssön cand. juris Glasgow af Pórði og lét breyta
allmiklu, einkum í norðurhluta hússins, og mjög til bóta, því að
þá voru þar gerð stór og "fögur herbergi, þar sem áður hafði varla
verið komandi; þar bjó Reinholt Andersen skraddari uppi, en
Steingrímur Johnsen niðri, en á efsta lofti Jón Ólafsson ritstjóri,
og eftir hann Brynjólfur Porláksson landshöfðingjaritari; en annars
hafa engir búið þar að staðaldri. Á bak við suður-enda Glasgows
er prenthús, er Einar hefur látið byggja; þar var »Dagskrá«
prentuð; en við norður-endann hefur verið bygt tvíloftað hús, og
kallað »Aberdeen« (eftir borg í Skotlandi eins og Glasgow), og
stendur það á Glasgows lóð, en ekki er mikil prýði að því húsi.

Nokkuð fyrir neðan Glasgow er »Liverpool« (þessi ensku
nöfn hafa komið upp með ensku verzluninni sem þá var); þab hús
var bygt af Jóni Markússyni kaupmanni, sem först með »Sölöven«;

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:05:04 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1900/0118.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free