- Project Runeberg -  Eimreiðin / VI. Ár, 1900 /
114

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

114

steinn«. vandað steinhús, er Schau steinhöggvari bygði upp úr
kot-bæ, er þar var áöur og hét Merkisteinn; nafn hússins er höggviö
yfir dyrunum. Par gagnvart er »Frú Marenar hús«, sem nú er
kallað; það hús bygði Einar Jafetsson, sonur Jafets Johnsens,
mágs Jóns Sigurðssonar forseta; en síðan keypti frú Maren það,
dóttir Lárusar Thórarensens sýslumanns og ekkja eftir Jóhannes
Guömundsson sýslumann, tengdamóðir doktor Valtýs; þar býr
hún nú ásamt Katrínu dóttur sinni. Par gagnvart er allmikið
bök-unarhús, timburhús einloftað og rúmlegt, bygt af Norðmanni
nokkr-um Endresen fyrir nokkrum árum, en nú eign félags nokkurs í
Reykjavik. Par þykja brauð nú bezt í bænum og margskonar
önnur brauðgerð. — Skáhalt þar á móti er »HÓTEL REYKJAVÍK«;
það hús bygði fyrst Nikulás Jafetsson, bróðir Einars, og var þá
lítiö hús með kvisti, og var þegar veitingahús; seinna fékk þa5
Einar Zoéga veitingamaður og lét bæta við það og byggja ofan
á það og lengja þaö mikiö; síðan flutti Einar þaðan og í það hús.
sem nú er »Herkastalinns, og þá varð húsið eign Ólafs
Eiríks-sonar söðlasmiðs, en hann seldi það aftur Einari Zoega, og er þaö
nú veitingarstaður eins.og áður. Gagnvart þessu húsi er
grjót-garður, upp á gamla vísu, og þar fyrir innan kálgarður, sem heyrir
til húss Árna Eiríkssonar, en þvert fyrir þeim garði og neðar
liggur rautt hús, tvíloftað og einkennilegt, og hefur af löguninni
hlotiö ýms nöfn: »skrínan«, »púltið« og »skattholið«, því hér á
landi er siður aö uppnefna alt, sem uppnefnt verður. Petta hús
bygði Sigurður Jonsson járnsmiður, og setti |>ar smiðju; þar bjó
hann tvö ár, en þá keypti Benedikt Ásgrímsson gullsmiður húsið
og bjó þar þrjú ár; síðan keypti Benedikt Gröndal húsið og
dubb-aöi það upp, því það var fremur óálitlegt utan, þótt vel væri
bygt; þessu húsi fylgir engin lóð að kalla má. Ofar Og upp vi6
götuna er hús Árna kaupmanns Eiríkssonar, bygt af Guðmundi
Erlendssyni útvegsbónda; það hús var lengi kallab »Rimma«, en
þetta nafn heyrist nú ekki lengur, því fólkið er orðið svo »mentað«.
Fyrir vestan þetta hús liggur stígur ofan að sjónum, en fyrir
vestan þann stíg er lítið hús, sem áöur var eign Jóns
Borgfirð-ings, og bjó hann þar lengi, og þar eru börn hans upp alin.
Neðst við sjóinn og í vestur frá stígnum er steinhús, nokkuö
gam-alt og einkennilegt, þaö bygði Sigur&ur Póröarson útvegsbóndir
sonur Póröar borgara og bróöir þeirra Guðmundar og Jóns. Á
þessu húsi eru veggir svo þykkir, að standa mundu fyrir fallbyssu-

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:05:04 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1900/0120.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free