- Project Runeberg -  Eimreiðin / VI. Ár, 1900 /
113

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

13

það var vel bygt og sterkt timburhús einloftaö, en [)á ekki annaö
en lítil sölubúð og geymsluhús; seinna keypti Magnús Jonsson i
Hrá&ræði húsið (mágur dr. Jóns Hjaltalíns og bróðir Jóns assessors
1 Álaborg), og rak þar verzlun; hann var auðugur vel og lét bæta
húsið og byggja ofan á það, og er það hið vandaðasta hús; eftir hann
tók við Sigurður sonur hans, og hætti þá verziunin von bráðar,
en húsið varð síðan eign Geirs Zoega kaupmanns, og býr þar nú
tengdasonur hans Th Thorsteinsson; þar er snotur verzlunarbúð
niðri og fögur herbergi uppi, en helmingur hússins er vöruhús;
á bak við húsið eða »til garðsins« hefur hinn núverandi eigandi
latift gera snotran blómgarö og sumarhús, og alt einkar vel
vandað. — Hér um bil gagnvart þessu húsi, þétt við sjóinn, er
mikið hús tvíloftað, úr timbri og tigulsteini; það lét Jón
Stefáns-son kaupmaður byggja og setti þar allmikla verzlun, en naut þess
skamma stund, því hann lézt snögglega í Kaupmannahöfn; þá
fékk Björn Kristjánsson húsiö og rekur þar allmikla verzlun; hús
þetta er sterkt og mjög vandað, en liggur mjög fyrir sjávargangi;
eru stórir og sterkir múrveggir hlaðnir upp úr klettunum þar fyrir
framan til þess að taka á móti briminu; þar hefur Rjörn látið gera
járnbryggju á steinstöplum, og má hafrótið ekki hagga henni, þótt
allar aörar bryggjur laskist, með því þær eru úr timbri og
öðru-vísi.

VESTURBÆRINN. Upp frá þessum húsum komum vér á
Yesturgötw, hún liggur héðan og alt út aö Framness-stíg, út úr
bænum sjálfum. Pá er fyrst íbúðarhús Geirs Zoega kaupmanns,
venjulega kallað »Sjóbúð« og gatan upp að því »Sjóbúðarstígur«,
þótt nú sé alveg rangt að nefna þetta þannig; en þessi nöfn eru
þannig til komin, að fyrrum var þar bær nokkur fremur lélegur,
og kallaður »Sjóbúö«; hefur þetta nafn svo loðað við húsið, sem
þar var bygt seinna. Petta hús Geirs var fyrst einloftað, en
seinna gerði hann það tvíloftað og mjög álitlegt, með því líka það
liggur hátt og uppi yfir götunni; þar hinum megin viÖ götuna er
verzlunarhús Geirs og vörugeymsluhús, og mikill útbúningur til
sjávarútvegs, svo ekki er eins hjá nokkrum manni hér. Nokkuð
ofar í götunni er snoturt steinhús, sem Arni Zakaríasson hefur
bygt; þar andaðist Guðmundur Pórðarson bæjarfulltrúi,
tengda-faðir Árna; en þar upp frá var áður bær Guðmundar, og hét »á
Hóli«. Ýms fleiri hús eru í þessari götu, þar á meðal »Merki-

8

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:05:04 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1900/0119.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free