- Project Runeberg -  Eimreiðin / VI. Ár, 1900 /
135

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

135

manns. í’að, sem honum hefir ekki tekist að þessu sinni, getur
honum tekist í annað skifti. Hann hlýtur að geta samið lýtalaust leikrit.1

Olaf Hansen.

III.

BJARNI ÞORSTEINSSON: ÍSLENZKUR HÁTÍÐASÖNGUR og
SEX SÖNGLÖG. Khöfn 1899. Það mun óhætt að fullyrða, að á
næstliðnu ári hafi engin íslenzk rit birst á prenti merkilegri en þessi
tvö sönghefti, og er þvf ekki nema skylt, að Eimreiðin flytji nokkur
orð um þessa fögru gjöf séra Bjarna til landa sinna. Hún er þannig
vaxin, að allir, sem unna okkar fátæku söglistarbókmentum og óska,
að þær megi hlónigast og dafna, ættu að flýta sér að kynnast henni.
Við eigum svo lítið af alíslenzkum tónlögum, að okkur er óhætt að
fagna nærri því hverju einu, sem birtist af því tæginu. En því meiri
ástæða er til þess, þegar um jafnfríðan nýgræðing er að ræða og þessi
tvö hefti.

Um »Hátíðasöngvana« er það skjótast að segja, að þeir eru
sér-lega vel og prýðilega samdir. Má af þeim undireins sjá, að séra
Bjarni er smekkmaður hinn mesti og að því skapi vandvirkur. Það er
sannarlega ekki hvers manns meðfæri að eiga við kirkjusöng, svo að
rétt snið verði á. er ekki nóg, að samhljómurinn verði lýtalaus

og fagur; nei, það verður líka að vera »stíll« í þvl öllu, — og
kirkju-braginn má ekki vanta.

f>að er einmitt þessi »stíll« í kirkjusöngnum,
sem hrífur hjörtun, og — að svo niiklu leyti sem söngur og
hljóðfæra-sláttur geta — vekur guðrækilegar hugsanir og tilfinningar í sálum
manna. Að því er séð verður, hefir séra Bjarna tekist þetta alt mæta
vel. og niega því íslendingar vel kunna honum þakkir fyrir þessa
»Hátiðasöngva«, eins og annars alt annað frá hans hendi.

Því miður

hafa þeir ekki enn verið reyndir að neinu ráði, nema í einni kirkju
sunnanlands (þó skömm sé frá að segja, þá er ekki enn farið að nota
þá í dómkirkjunni í Reykjavik, hvernig sem nú á því stendur), og
líkaði söfnuðinum prýðiiega. J. P. E. Hartmann hefir yfirfarið
söngvana með séra Bjarna og hafði lítið sem ekkert við þá að athuga.

1 Af því að svo miklir örðugleikar eru á fyrir íslendinga að dæma réttilega um
leikrit, hefir osä eigi tekist að fá neinn Islending, er vér treystum, til þess að rita
nm »Sverð og bag-1«. Vér höfum því beðið danska skáidið Olaf Hansen að rita
fvrir o.ss um þessa bók, og vonum að ekki þyki ver farið en heima setið. A
þýð-ingunni berum vér ábyrgð, en ekki höfundurinn. Er þessa því hér getið, að
rit-dómurinn er 1 raunninni snjallari og betur orðaður á frummálinu. Af þvi að enn
hefir verið svo litið ritað af gagnrýnisritgerðum um bókmentir á íslenzku, er tunga
vor svo fátæk að orðum í þeirri grein. í’að er því oft hægt að orða margt
heppi-legar og nákvæmar á uðrum tungum um þess konar efni, af †)ví að þörfin hefir þar
skapað ný orð, sem oss vantar enn, en sem vonandi mvndast smátt og smátt með
tímanum. RITSTJ.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:05:04 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1900/0141.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free