- Project Runeberg -  Eimreiðin / VI. Ár, 1900 /
168

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

68

varla er enn byrjaö að greiöa sundur hinar einstöku deildir.
Sum-staðar heíir eflaust myndast móberg og hraun milli ísalda,1 það
væri undarlegt, ef eldfjöll þá hefðu hætt að gjósa, og eins meðan
jökull lá yfir öllu eöa mestöllu landi,2 og hefir aska sü blandast
saman viö frammokstur jöklanna. í öörum löndum hafa menn
fundið rök fyrir nokkrum ístímabilum með tiltölulega hlýju
lofts-lagi á milli, og svo hefir eflaust lika veriö á íslandi, enda hefir
enginn efast um það. H. P. gerir þó aö mínu áliti of mikiö úr
þeim järömyndunum, sem þá uröu til, og landslagsbreytingunum, þó
þær eflaust hafi veriö allmiklar. Petta alt er enn litt rannsakaö,
og full vissa fæst ekki, fyr en öll möbergshéruö og nokkur
blá-grýtishéruö hafa veriö rannsökuð í þeim tilgangi, aö leita aö
þess-konar jarölögum.

Í raun og veru eru athuganirnar í Hreppunum aö mínu áliti
engan veginn nægileg sönnun fyrir mismunandi isöldum um land
alt. Víöa á íslandi ná skriöjöklar enn niöur undir sjó og sumir
(t. d. Breiöamerkurjökull) hafa á ótrúlega stuttum tíma breiöst yfir
stór svæöi Hafi Langjökull og Hofsjökull lengi fram eftir veriö
miklu stærri en nú, og það gera vatnsboröin hjá Hvítárvatni mjög
sennilegt og en fleiri rök styöja þá ágizkun, þá geta jökuluröir og
ísrákuð hraun í Hreppum veriö tiltölulega mjög ung. En það getur
lika veriö, aö þau séu gömul. Jöklar ganga fram og dragast aftur
á löngum timabilum eftir árferöi, og þá er ekkert eölilegra, en aö
myndast geti jökuluröir og ísnúin hraun á víxl. Ef skoriö væri i
sundur isþakiö eldfjall, er enginn efi á því, aö þar mundu finnast
ísnúin hraun og jökulöldur hvort ofan á ööru, enda hefi ég séö
slíkar myndanir noröan i Vatnajökli og viö Vonarskarö. Ég gæti
vel imyndaö mér, aö hnullungalögin viö Tindafjallajökul og
Eyja-fjallajökul væru svo til oröin, þó þaö sé ekki víst. Bæöi 1 Öskju
og viö Vatnajökul sjást á stöku staö (eins og i Andesfjöllum)
hraunlög og íslög á víxl, þar sem hraun hafa runniö yfir jökul svo
hátt yfir sævarmáli, aö meöalhiti ársins er minni en o°.

1 Vér komunist svo að orði, þó það sé eiginlega ekki rétt, því aldrei mun
jökull hafa albráðnað af Islandi síðan hið fyrsta kuldatímabil hófst.

2 Flestir ungir jarðfræðingar hafa sterka tilhneigingu til þess að mynda nýjar
»theóríur«, og svo var einnig fyrir sjálfum mér. Aður en ég byrjaði
jarðfræðis-rannsóknir á íslandi til muna, hafði ég þá hugmynd, að móbergið væri myndað við
eldgos undir jöklum á isöldinni, af því flest ísþakin eldfjöll gjósa mest ösku. En ég
fór niður af þessari skoðun, þegar ég hafði skoðað móbergsfjöll víðsvegar um land,
af því svo margt virfist mæla á móti.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:05:04 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1900/0178.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free