Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
167
hrauna til móbergsins í Rauðukömbum og Fossöldu? Hvernig er
líparítið til orðið, sem brotist hefir gegnum hnullungabergið og
móbergið? Hvernig stendur á »tachýlýtinu« í hnullungberginu og
hinum margkvísluðu göngum og basalthnúðum í móberginu? í
hverju hlutfalli standa döleríthraunin til hinna óteljandi sprungna,
sem eru í fjöllunum við dalinn, og hafa stórar og smáar
land-ræmur sokkið milli þeirra. Ganga dóleríthillurnar utan í
austur-fjöllum dalsins inn í fjöllin, eða eru þær svona settar af því
fjalls-hlíðarnar hafa stigbrotnað (Staffelbruch) ? Par er enn margt fleira
að athuga, en höf. fer yfir það alt á handahlaupum, án þess að
låta það stöðva hugmyndaflugið.
Móbergsmyndanirnar íslenzku eru mjög margbrotnar og eflaust
myndaöar á ýmsan hátt og á ýmsum tímum, og vita jaröfræðingar
enn nauðalítið um það, hvernig þær eru til orðnar; til þess þarf
enn langar og miklar rannsóknir og samvinnu milli jarðfræðinga af
ýmsu tægi; til þess þarf eldfjallafróða menn, jökulfróða og
berg-fræðinga; að rannsaka þetta alt til hlítar er einskis eins manns
meöfæri. Pó er móbergið aðeins einn litill liöur í jarðfræði íslands.
Á ferðum mínum varð ég aö fást viö margbrotin störf, kanna
ör-æfi, mæla landslag og fjallahæðir, undirbúa jarðfræðisuppdrætti,
rannsaka jökla, eldfjöll, hraun og hveri, blágrýti, líparít, móberg,
surtarbrand, sævarmenjar o. m. fl., til þess að fá yfirlit yfir þetta
alt saman og búa svo í haginn fyrir eftirkomendurna. Rannsókn
jarðlagaskipunar í hinum einstöku fjöllum tekur mikinn tíma, og gat
ég því miklu sjaldnar, en ég vildi, fengist við slíkt; þetta verður að
bíöa betri tíma og vona ég, að aðrir taki fyrir sig að kanna einstök
svæði og einstaka liði í jarðfræði íslands, eins og H. P. nú er
byrjaður á, þar sem hann sérstaklega hefir lagt fyrir sig rannsókn
jökulurða og ismenja. Á þann hátt getum vér á endanum fengið
fullkomna þekkingu urn mj’ndun og byggingu vors víðáttumikla
og hrjóstruga föðurlands. Athuganir mínar um móbergið og aðrar
jarðmyndanir íslands hefi ég skrásett í ýmsum ritgjörðum, en sjaldan
dregið ályktanir af þeim, nema þegar þær hafa verið mjög margar
af sama tægi, því annars áleit ég, að þær hefðu ekki nægilegt
sönnunarafl, fyr en fleiri bættust við.
Hér er ekki rúm til þess að geta um ýms málefni, er snerta
jaröfræði móbergsins; en svo mikið er víst, að aldur ýmsra
mó-bergslaga er mismunandi og að það er til orðið á öllum tímabilum,
frá því snemma á hinum »tertíera« tíma fram á vora daga; en
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>