Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
1J2
Hans andvökum lauk nú,
er æfin þvarr svo skjótt.
Á sægirtri Drangeyju
hann sofi vel og rótt,
í friði fyrir vopnum
og vigamanna drótt.
Nú lítið á blóöroðið
lik hins unga manns,
og sverð yðar sliðrið
er sögu styttu hans!
Pótt lífi hann ræntuð
ei lét hann frægðar-krans.
IV. JÓL í SKÁLHOLTI.
(Þorláksmessu 1193).
Pað er liðið til jóla. Um lautir og hóla
sem línbrjóst á konum er drifthvítur snær.
En úr héröðum víða nú höfðingjar ríða,
þeir halda til Skálholts, þó leið sé vart fær.
Vinir heilsast án gleði, því hvers manns í ge&i
býr harmur, sem dylst ei að mjög gengur nær.
Nú er hátíð Krists burðar svo hljóðleg, aö furðar:
þó hlýði menn kirkjusöng, léttist ei brá.
Hvílíkt tjón má þaö vera, sem til þess mun bera
að truflast hinn helgasti fögnuður máf —
Hann er dáinn, sem mestur var maöur og beztur
og metinn og elskaður landsbúum hjá.
Hann var ljós íslands barna og leiðsögustjarna,
sem ljómandi sólgeisli’ í koldimmum geim,
þeirra faðirinn dýri og hirðirinn hýri,
sem helgastur, kærastur gimsteinn var þeim.
Hafði fimtán ár stjórnaö og starfskröftum fórnað
svo stýrt fengi lýðnum til guðsríkis heim.
Hafði sextíu’ ár litið, er sumri var slitið,
og sumar kom aftur. er vetur leið frá.
Enn mun vor fylgja vetri með veðráttu betri,
af vötnum fer ís og af jörð leysir snjá;
og er sól vermir svörðinn, fær sumarblóm jörðin, —
en seint mun þess auðið hans jafningja’ að fá.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>