Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
i7i
Pað er alkunnugt, aö hér er ekkert gert af privatefnum, sem
varðar opinbera hluti eöa almennings heill; enginn foraar
ein-um eyri til þess, og aldrei hefur heyrst aö nokkur maöur gefi
kirkjunni eyris virði, þvert á móti er kirkjan fremur rýjuð, eins og
nú sást, þegar orgelinu var fleygt á burtu sem ónýtu. En þrátt
fyrir þetta eru Reykjavíkurbúar mjög velgjöröasamir menn. Menn
mögla ekki út af því, þótt lagöar séu á bæjarmenn um 14000
krónur á ári til fátækra; þó að þetta sé lögboðið, og þó að þetta
sé óheyrileg ánauð og ósómi, þá möglar enginn, og það er
vel-gjörningur engu að síður.1 En hver mun telja alt það, sem
fá-tæklingum — sumum óverðugum — er gefið hér af frjálsum vilja?
Hver veit, hversu miklu það nemur, sem Thorvaldsensfélagið gefur
á ári hverjuf Petta er aldrei nefnt, en þar á móti fáum vér aö
vita, hversu margar miljónir einhverjir maurapúkar í Ameríku eiga!
FRAMFARIR. Af öllu því, sem nú hefur sagt verið, má sjá
hversu Reykjavik hefur fleygt fram á síöasta mannsaldri. Raunar
eru þetta alt öðruvísi framfarir en þær, sem blaðamennirnir
pré-dika; en þó að þetta, sem enn er fengið, ekki sé í stærri stíl eða
mikilfenglegra en það er, þá er það verulegar framfarir, sem eru
bygðar á eðlilegum gangi lífsins, en hafa ekki orðið að náttúrunni
nauðugri og alt í einu, eins og æstir »framfaramenn« ætlast til.
Iðnaðarmönnum hefur fjölgað ákaflega mikið síðustu árin, og þótt
barlómurinn sjáist alt af öðru hvoru í blöðunum, þá er samt ekki
að sjá neina tiltakanlega fátækt hér, alt slæpist einhvernveginn af,
og kvartanir um atvinnuleysi er vandræðaþvaður. Par sem áður
var ekki unt að fá gert viö úr eöa sigurverk, nema låta einhvern
gullsmið káka við þaö, þó að hann kynni ekkert að fást við slíka
hluti, þá eru hér nú agætir úrsmiðir, sem ekki einungis geta gert
viö úrin, heldur og sjálfir smíðað úr eins fögur og vönduð og gerð
eru i útlöndum; raunar hefur íslendinga aldrei vantaö hagleiksgáfu,
og þess konar og margt annað hefur verið smiðað fyr, en það var
alt grófara og gert með lakari verkfærum; þarf ekki annað en
fara til Magnúsar Benjamínssonar, til þess að sjá hans
meistara-smíði á stórum stundavísirum, sem ekki skeika um eina sekúndu
1 Árið 1889 var varið til fátækra-framfæris á öllu landinu; 191,640 krónum;
en árið áður: 209,426 krónum (Isafold 2. desember 1893). Einhversstaðar var tekið
fram, hversu mikið Vesturheims-»Islendingar<c gæfi sínum fátæklingum, svo sem til
að sýna, hversu þeir væri okkur fremri í þessu sem öðru.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>