- Project Runeberg -  Eimreiðin / VI. Ár, 1900 /
192

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

192

á sólarhring; gengur annar með jafnaðarhengli
(Compensations-pendul), þar sem tvær málmtegundir lengjast og styttast á víxl
eftir hita og kulda og jafna þannig ganginn. Ekki standa
járn-smiðírnir heldur að baki útlendum smiðum, það sem verk þeírra
getur náð (hér er t. a. m. engin járnsteypa né aðrar eins
verk-smiðjur og í útlöndutn), en að hagleik eru þeir fullkomlega hvers
manns jafningjar; sama má segja um aðra smiði hér og annan
iðnað, sem hér er framinn. Alt þetta eru verulegar framfarir; en
þaö eru engar framfarir, þó verið sé að nudda um, að íslendingar
sendi vörur sínar út úr landinu á »heimsmarkaöinn«, því þar mundi
lítið muna um þær, enda nær að selja þær hér, ef sama verð eða
svipað fengist fyrir þær. Ekki er heldur víst, að teljandi sé með
framförum allur sá fjöldi smáverzlana, sem þýtur upp hér eins og
annarsstaðar; það er likt eins og með stórbúin, þeim er bútað 1
sundur og þau gerð aö mörgum kotum, svo ekkert verður úr
neinu. — Sumir hafa hér kýr og hæns, stöku sinnum sjást hér
endur og gæsir; en um verulegan landbúnað er hér ekki að tala,
eins og nærri má geta; mjólk er hér seld allmikið með köflum,
sumstaðar góð, en líklega of dýr; og ekki er sparað að færa verðið
upp, hvenær sem unt er, þó ekki sé nema um einn eyri; þetta
fólk lætur sig muna um alt, kaupmanna-andinn er svo mikill í
okkur! Pess er einnig vert að geta, að hvergi hér á landi munu
verzlunarmenn vera kurteisari við almúgafólk en hér, og er ólíkt
að heyra sögurnar annarsstaöar að, fyrir utan hvað alt er miklu
dýrara undir eins og kemur út fyrir Reykjavik (t. a. m. kolin 6 kr.
skippundið í Vestmannaeyjum, og líklega víðar, og alt þar eftir;
en þetta nefnir enginn. landsmenn eru víða enn í
einokunarfjötr-unum, og geta ekki við gert). — Til framfara má og telja
þilskipa-útveginn; þar sem fyrir nokkrum árum ekki sást eitt einasta
fiski-þilskip hér á höfninni, þá er nú þilskipafloti Reykjavíkur hér um
bil 50 skip; en hvort þau eru smíðuð hér eöa ekki gerir minna
til; bátafiski er nú svo sem ekkert, svo minna er um nýjan fisk
en áður, því fiskur þilskipanna fer til útgerðarmannsins og út úr
landinu, en íslendingar hafa enn ekki komist upp á að éta
salt-fisk, halda kannske það sé svo vandasamt eða óholt, og þyrftu
þeir að læra það af öðrum þjóðum eins og annað. Petta er
ókostur við þilskipa-útveginn, en aftur á móti hafa þar margir
menn atvinnu, þótt sú atvinna sé miklu verri og meira spillandi
en landvinnan, sem enginn vill nú líta við; og þótt sífelt heyrist

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:05:04 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1900/0202.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free