- Project Runeberg -  Eimreiðin / VI. Ár, 1900 /
215

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

215

er hlýtur aö veröa honum til hnekkis á margar lundir, sem hér
yrði of langt upp að telja.

Um önnur húsdýr er varla aö tala, því þó fáeinar geitur séu
á nokkrum stööum, þá gætir þeirra lítið. Pær vóru 1896 tæpar
100 á öllu landinu. Af alifuglum er varla um annaö en hæns aö
ræða. (Í fornöld höföu menn á íslandi fjölda svína og gæsa, en
slíkt þekkist ekki nú).

Garöyrkjunni hefir fariö mikiö fram á hinum síöustu árum.
Pannig hefir t. d. uppskera af kartöflum og rófum hér um bil
sex-faldast á 10 ára timabilinu 1885—95 (kartöflur: 1885: 2,953 tn.,
1895: 18,170 tn.; rófur: 1885 : 2,820 tn., 1895 : 16,163 tn.). Aftur
hefir heyaflinn staöið nokkurnveginn í staö siöustu 10 árin, veriö
um V2 milj. hesta af tööu og 1 milj. hesta af útheyi a ári,
stund-um litlu meiri og stundum minni eftir árferði.

Aö jaröabótum hefir töluvert veriö unniö nú siðustu árin.
Árið 1897 vóru þannig sléttaðir 320,756 □ faömar í túnum,
kál-garöar auknir um 50,438 □ faðma, hlaönir túngarðar 24,329 □
faömar, geröir varnarskurðir 16,471 faðm., vatnsveitingaskuröir 34,879
faöm o. s. frv. En þrátt fyrir allar þessar jaröabætur er þó ekki
enn lengra komiö en það, að ræktað land (tún og kálgarðar) á
öllu landinu er ekki nema tæpar 3 □ mílur (2,92) og af flæöiengi
ekki nema 1/2 □ míla. Pegar miöaö er viö stærö landsins (1903
□ mílur) má því svo að orði kveða, aö alt landiö liggi enn í
órækt, þar sem hinn ræktaði hluti er ekki nema eins og krækiber
í ámu.

Hins vegar er það ljóst, að nú er vaknaður töluverður áhugi
á aö efla landbúnaöinn og rækta landiö, því á hinum síöustu árum
hefir mikiö veriö gert í þá átt bæöi af hálfu einstakra manna,
landsstjórnarinnar og þingsins. Paö hefir veriö stofnaö
garðyrkju-félag, fjöldi minni búnaöarfélaga og eitt allsherjarbúnaöarfélag fyrir
alt landiö. Enn fremur hefir veriö settur á fót búnaðarskóli í
hverju amti. Af landsfé er nú á hverju ári veitt töluvert fé bæöi
til búnaðarfélaga og búnaðarskólanna, og á fjárlögunum hefir veriö
veitt heimild til aö lána bændum fé til hinna stærri jarðabóta meö
vægum kjörum. Pá hefir og veriö veitt fé til aö koma upp
mylkiskenslu og verölaunum heitiö fyrir útflutt smjör. Fé hefir
og veriö veitt til trjáplöntunar, til rannsókna á fóðurjurtum, til
gróðrartilrauna o. fl. Er þetta alt ekki lítil framför, þegar miöaö
er viö, hvaö gert var fyrir landbúnaðinn áður en viö fengum lög-

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:05:04 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1900/0225.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free