- Project Runeberg -  Eimreiðin / VI. Ár, 1900 /
225

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

225

hafa orðið á hinum síðasta aldarfjóröungi, eftir að stjórnarskráin
hafði veitt þjóöinni sjálfri hlutdeild í stjórn landsins. Og þó hefðu
framfarirnar vafalaust orðið langtum meiri, ef æðsta stjórnin heföi
veriö í höndum manna, sem bæöi hefðu haft meiri þekkingu á
högum landsins og meiri tíma til að sinna málum þess.

Pegar alls þessa er gætt, þá er engin furða, þó íslendingar
séu fátækir. Hve miklu þjóðeign landsins nemur, er ekki hægt
að ákveöa með neinni vissu, af því að nægilegar skýrslur til þess
vantar. En hún mun þó varla verða metin meira en í hæsta lagi
30—40 milj. eða 400 til 500 kr. á mann, og mundi slíkt þykja
harla lítiö annarstaðar, þar sem 3—4000 kr. eöa jafnvel meira
kemur á hvert mannsbarn. Allar jarðeignir landsins eru hátt
metnar ekki nema 10 milj. króna virði, en hve mikils virði þau af
jaröarhúsunum, sem ekki fylgja þeim, eru, v-eröur ekkert um sagt.
Aftur vita menn betur um húseignir í kaupstöðunum og mun nú
mega telja þær um 6 milj. króna virði (1896: 5,269,000 kr., 1886:
3,628,000 kr-, 1879: 1,665,000 kr.), og eru þó hvorki kirkjur né
skólahús þar með talin, nema í Rvík einni. Kvikfjáreign landsins
má telja um 11 milj. króna (1896: 10,819,000 kr.), en hversu mikils
viröi þilskipastóll landsins er, bátaeignin, veiöarfæri, búsgögn og
verkfæri, vörubirgðir og heyja, verðmætir gripir, peningar í
sjóð-ura og hjá einstökum mönnum o. s. frv., um það er ekkert hægt
að segja nema með ágizkun einni. En það virðist þó ekki fjarri
lagi, að ætla, að alls og alls séu eignir landsmanna rúmar 30 milj.
kr. eöa eitthvað á milli 30 og 40 milj.

En þó að þjóðeignin sé næsta lítil og á henni hvíli töluveröar
einstaklingsskuldir, þá er aftur själft þjóöfélagiö eöa landiö
skuld-laust og í því efni betur statt en flest önnur lönd, sem velflest
skulda ógrynni fjár (ríkisskuldir). ísland á meira aö segja álitlegan
varasjóð, sem heita má aö stööugt hafi farið vaxandi, síöan
fjár-mál Islendinga og Dana vóru aðskilin 1871, en áður var jaftian
töluverður tekjuhalli. Pegar íslendingar tóku sjálfir við
fjárráöun-um *"/1. 1876 var hann þó ekki orðinn nema 162,000 kr., en 31 /12.
1897 vóru eignir hans ásamt eftirstöövum landssjóös alls 1,676,753
kr. 93 au. Alþingi hefir meö því að breyta skattalögunum. leggja
á nýja tolla o. s. frv. tekist aö auka tekjur landsins svo, aö þær
eru nú orðnar meira en fimmfalt meiri en fyrir 25 árum. Á
fjár-lögunum fyrir fjárhagstímabiliö 1874—75 vóru hinar áætluðu tekjur
ekki nema 443,047 kr. (og af þeim þó 200,000 kr. tillag úr ríkissjóði

15

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:05:04 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1900/0235.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free