- Project Runeberg -  Eimreiðin / VI. Ár, 1900 /
235

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

245

PJÓÐHÆTTTR. Ef telja ætti upp allar þær breytingar og
framfarir í þjóðháttum íslendinga. sem orðið hafa á hinni umliðnu
öld í smáu sem stóru, þá yrði langur uppi. Um það má töiuvert
lesa í ritgerð séra Porkels Bjarnasonar >Fyrir 40 árum« í Tímariti
Bókmentafélagsins XIII (1892) og athugasemdum dannebrogsmanns
Ólafs Sigurðssonar í Ási við hana í sama riti (XV. árg., 1894), og
leyfum vér oss aðallega að vísa til þeirra ritgerða. Hér skal þess
eins getið, að hýbýlaskipun hefir mjög breytst til bóta, fataburður
orðið smekklegri, hreinlæti vaxiö, mataræði batnað og hjátrú og
hégiljur minkað. Pá hafa og verkfæri manna tekið talsverðum
umbótum og sum ný upp tekin. Má sem dæmi þessa nefna, að
fram að 1840 var ljárinn reyrður við orfið, en þá fundu menn upp
á að festa hann með járnhólkum, og hafði sú uppgötvun enga
smávegis þýðingu fyrir sláttumanninn, þó hún sýnist í sjálfu sér
ekki stór. Enn meiri framför var þó það, er menn tóku upp
skozku ljáina og lögðu niður dengingarspíkurnar gömlu. Pá má
og nefna bættan reiðskap, bætt veiðarfæri, nýjar vélar:
sauma-vélar, prjónavélar, skilvindur, taðvélar, hjá sumum nýja vefstóla,
spunavélar, kerrur og vagna og jafnvel sláttuvélar. Ekki var þa&
heldur lítil framför, er steinolíulampinn útrýmdi grútarlampanum.
Af framför í íþróttum má sérstaklega nefna sundkenslu þá, er nú er
upp komin víða. Margt fleira þessu likt mætti til tína, ef rúmið leyfði.

Eitt hið helzta framfaramerki í þjóðháttunum verður og að
telja það, að samkomur og fundarhöld eru nú orðin tíðari en áður
og skemtanir dálítið margbreyttari, þó enn megi betur vera. Pað
er enginn vafi á því, að auknir mannfundir, aukin gleði og aukiö
lifsfjör eru einhver hin öflugustu meðul til aö kippa mönnum upp
úr doðanum og létta af þeirri lognmollu, sem nú í nokkrar aldir
hefir hvílt yfir landinu. En langt á það enn í land, að eins mikið
kveði að mannfundum, skemtunum og ferðalögum eins og hjá
for-feðrum vorum á blómaöld landsins, enda lika lífsfjörið, dáðin og
drengskapurinn að sama skapi minni en þá.

NIÐURLAG. Pó að hér hafi verið stutt yfir sögu fariö og
mörgu slept, sem á hefði þurft aö minnast, vonum vér aö þetta
sé þó nægilegt til þess að sýna, í hverja átt þjóðin hefir stefnt á
umliðinni öld, og að framfarirnar eru ekki alllitlar í ýmsum
grein-um. Sólskinsblettirnir eru margir, en um nýja skuggabletti er miklu
færra, þó að þeir því miður séu lika til. Ef svo er að gætt, á

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:05:04 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1900/0245.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free