Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
234
tVí verður sem sé naumast neitað, að ýmsir af þeim þurfalingum.
sem nú lifa allþægilegu lífi sem sveitarómagar, mundu geta unniö
fyrir sér, ef meira væri að þeim lagt, enda hefir sú orðið reyndin
á, þegar sveitarómagar hafa verið sendir til Ameríku, aö þeir hafa
þar vel getað alið önn fyrir sér, þó þeir þættust ekki geta það
á íslandi. En þegar menn geta viðstöðulaust fengið eins gott eða
jafnvel betra viðurlífi á kostnað annara, en þeir, sem eru að berjast
við að bjargast af handafla sínum, þá finst þei.ri óþarfi að vera aö
leggja mikið að sér. En að vera að ala slíka peyja á alþjóðar
kostnað, er sannast að segja fullkominn misskilningur á
mannúðar-reglunni og harla mikil rangsleitni gagnvart öllum hinum
nytsam-ari mönnum í þjóðfélaginu.
Bindindismálið eða baráttan gegn ofdrykkju hefir nú hin
síðari árin fengið mikiö fylgi á íslandi, enda hefir að því verið
unnið af töluverðu kappi. Bindindisfélögin eru nú orðin mörg og
er Goodtemplarafélagið þeirra stærst og duglegast. í því eru nú
um 4000 manns og það hefir komið sér upp mörgum
samkomu-húsum. Hið stærsta þeirra er í Rvik, enda er aðalaðsetur
félags-ins þar og stórstúka þess. Þar er og annaðhvort ár haldið
stór-stúkuþing, er undirstúkurnar geta sent 1 fulltrúa á fyrir hverja 50
félagsmenn. Að hin öfluga barátta bindindisfélaganna hafi borið
töluverðan árangur, má meðal annars sjá af því, að þó að
inn-flutningur á öllum öörum vörum hafi aukist stórkostlega hinn
síö-ari hluta aldarinnar, þá hefir innflutningur á vínföngum beinlínis
minkað, þegar miðað er viö hvern íbúa landsins. Árið 1865 var
þannig innflutt af brennivíni 8,94 pottar á mann og af öðrum
áfeng-vim drykkjum (vínum) 1,81 pt.; en 1896 var ekki innflutt af
brenni-víni á mann nema 5,05 pt., af öðrum áfengum drykkjum (vínum)
0,9« pt. og af öli 2,4« pt. Af þessu má sjá, að þó að ölið sé
metið jafngildi brennivíns (sem þó fer mjög fjarri), þá hefir samt
verið innflutt 21/a potti minna af áfengi á mann 1896 heldur en
1865. Og þegar þess er nú enn fremur gætt, að hér er miðab
við hvert mannsbarn á landinu, en tala þeirra, sem áfengisins
neyta, er svo margfalt minni, þá er þetta engin smávegis framför
í rénun ofdrykkjunnar. Alþingi hefir líka stutt
bindindishreyfing-una, bæði með því, að veita Goodtemplarafélaginu talsverðan styrk,
og með því að gera alla áfengissölu miklum mun örðugri en áður
og leggja þungan skatt á hana. Pað má því búast við, að
fram-farirnar verði enn meiri í þessu efni í nánustu framtfð.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>