Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
II
væri hægara að fá tóm til þess að nema og stunda bóklega iðn
en í Reykjavik. Par eru saman komnir svo margir lærðir menn,
að leitun er á fleirum á jafnlitlum bletti. Pó eru þar einstöku
menn, sem låta til sín heyra vi& og við. Því hefur stundum verið
fleygt, að hinir yngri menn hefði einhvern ímugust á fornfræði og
þesskonar. En hvort þetta er satt, veit ég ekld, og þaö er líka
utidir því komið, hver »fornfræðin« er. En hitt er víst, hvað sem
sumir segja, að vér Islendingar erum nú einu sinni með því fæddir
og með því markinu brendir, aö þykja mest koma til sögu og
þesskonar fræða. Jafnvel þeir menn, sem mest nýjabrutnið er á
og ættu að vera fjarstæðastir handritagrúski og fornfræða-fágun,
eru stundum komnir út í sögu og fornfræði, fyr en nokkur veit
af, og rita langar bækur um. Eg minni á Landfræðissögu dr.
Porvalds Thóroddsens.
Ég geng að því vísu, að það séu aðeins þ e s s i vísindi, og
engin nema þau, sem íslendingar geti framvegis, eins og hingað
til, afrekað nokkuö í, er sjálfstætt sé og gott. A8 einn og eínn
vekist upp í öðrum vísindum, efast ég ekki um, en þeir verða
aldrei nema undantekningar. Enda liggur oss næst sjálfum aö
leggja sem mesta rækt og bezta við vora eigin sögu og vor eigin
fræði. Það gera og allar aðrar þjóðir hver fyrir sig.
Einn af þeim fáu mönnum í Reykjavik, er af alvöru leggja
stund á vísindi og bókagerð, er skólastjóri, dr. Björn M. Ólsen.
Hann hefur ritað ýmislegt, bæði á dötisku og íslenzku, um rúnir
á íslandi til rits (á dönsku), ritgjörðir um Ara fróða og fleira, um
Sturlungu (í Safni til sögu íslauds), og nú síðast um »Um
kristni-tökuna áriö iooo og tildrög hennar«,^ bækling í stóru broti með
108 blaðsíðum.
Paö sem einkennir öll rit höfundarins, er fyrst og fremst góð
þekking á heimildarritum, þar næst skilmerkileg og ljós sldpun
efnisins og greining, og í þriðja lagi lipurð í máli1) og allri ytri
meöferð efnisins. Af öllum ritum hans þykir mér langmest koma
til Sturlungu-ritgjörðarinnar og ber margt til þess. Auk þeirra
eiginlegleika, er nefndir voru, ber þessi ritgjörö alstaðar vott um
hugsunarrétta rantisóknaraðferð; enda er tiiðurstaða höf. að mestu
rétt, en efnið er víða erfitt og flókið. Paö er örsjaldan, aö höf.
*) Einstöku sinnum bregður þvi fyrir hjá höf., að hann hefur danskar setningar
í huga og þýðir þær.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>