- Project Runeberg -  Eimreiðin / VII. Ár, 1901 /
82

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

82

engilhreinu sakleysi í huga þínum. Vakandi og sofandi skal þig
um hana dreyma.«

Lofaöu mér heldur aö sofna aftur,« sagöi sálin. »Ástin
fyrn-ist. Ég sá þaö í mannheimum. Eftir nokkur ár yröi hugur minn
viö alt annaö bundinn. Annars væri ég ekki karlmaöur.«

»Pá geri ég þig aö konu.« sagöi Drottinn, »og gef þér þann
manninn, sem hjarta þitt þráir. Ljúfasta nautn þín skal vera aö
gera daga hans dýrölega, vefja um hann ástríkinu, veita
kærleik-ans lifsvatni inn í sál hans, låta sólargeislana leika sér alt i
kring-um hann, svo aö hvergi beri skugga å.«

»Lofaöu mér heldur aö sofna aftur,« sagöi sálin. »Pegar hugur
hans hverfur frá mér, mæni ég á eftir honum meö tár i augunum
og sorg i hjartanu. Annars væri ég ekki kona. Ég hefi séö það
i mannheimum.«

»Vandfýsin ertu,« sagöi Drottinn. »Petta býö ég þó ekld
öörum en óskabörnum hamingjunnar. Samt ætla ég aö bjóöa þér
þaö, sem enn betra er. — Ég gef þér kærleikann til allra manna.
Aö því einu skal þrá þín lúta, aö fá gert alla menn vitra og góöa.
Hvern volaðan vesaling, hvern heimskan sjálfbirging, hvern
misk-unarlausan mannniöing skaltu elska eins oh sjálfa þig. Allar þínar
hugsanir skulu vera hugsaöar fyrir aöra menn. Pú skalt gefa þeim
alt, sem þú átt, auðæfin þín, fötin þín, matinn þinn, sálarfriöinn
þinn.«

»Fæ ég þá líka aö njóta ástríkis annarra mannar« spuröi sálin.

»Nei,« sagöi Drottinn. »Nú ertu að veröa of heimtufrek. Plg
er ekki aö senda þig til himnarikis heldur til mannheima. Par
getur ekki einu sinni guð almáttugur vakið ást á þeim mönnum,
sem elska aðra. Pví heitar sem þú elskar mennina, því
sannfærö-ari verða þeir um, aö þú sért annaöhvort fantur eöa flón. Peir
rægja þig þá og svívirða á allar lundir, sjá ofsjónum yfir hverri
spjör, sem þú hylur meö nekt þína, hverju hlýlegu oröi, sem
mönn-um verður af vangá að segja um þig, hverju ánægjubrosi, sem
um varir þínar kann að leika. Krossfesti þeir þig ekki, þá er þaö
af því, að þeir hafa ekki manndáð í sér til þess. — En alt þetta
skaltu geta borið hugrökk og meö ljúfu geði, af því að þú elskar
mennina.«

»Lofaöu mér heldur aö sofna aftur,« sagöi sálin.

»Vandfýsin ertu,« sagöi Drottinn. »Petta býö ég annars
engum.«

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:05:17 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1901/0094.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free