- Project Runeberg -  Eimreiðin / VII. Ár, 1901 /
103

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

ie>3

verið samankomnir, hver innan í oðrum. En ótætis erfðasyndin
átti einnig bústað í Evu langömmu vorri; eftir þessari kenningu
þótti nú auðsætt, að henni var lafhægt þegar í stað að ganga í
skrokk veslings manneskjunum, sem þarna voru samansafnaðar í
einni bendu.

Pegar smásjáin var fundin (Leeuwenhoek † 1723) opnaðist
nýr og stærri sjóndeildarhringur, og metrn urðu færir um að
rann-saka ýmislegt, sem áöur var ósýnilegt, þar á meðal fóstúr og egg
dýranna. Caspar Frederík Wolff († 1794) sýndi fram á þaö með
nákvæmum rannsóknum, aö hinar gömlu kenningar voru rangar;
eftir a5 hann og Karl Ernst Baer,’ sem fyrstur fann egg konunnar
með smásjánni (um 1830), höfðu gjört ýmsar mikilvægar
uppgötv-anir í fósturfræöinni, sem enn þá hafa gildi, hefur henni fleygt
fram og hver nýjungin hefur rekið aðra alt fram á þessa tíma.

Eg vil nú í stuttu máli leitast við að skýra frá því helzta, sem
fósturfræðingar vorra tíma kenna oss um, hvernig maðurinn og
meginþorri allra dýra verða til.

Það er þá fyrst frá því að segja, sem flestum mun kunnugt,
að samræði karldýrs og kvenndýrs er nauðsynlegt tíl þess, aö
fóstur myndist.

Æxlunarfæri kvenndýrsins eru útbúin með tveim eða fleirum
eggjastokkum, en í þeim er aragrúi af eggjum, misjafnlega
stór-um hjá hinum ýmsu dýrum; vanalega eru þau örsmá, egg
konunnar er t. d aðeins 1/s millímetra að þvermáli og því vart
sjá-anlegt með berum augum. Hænueggið virðist því vera risavaxið
í samanburði við það; en hér er aðgætandi, að mestur hluti
fuglseggsins er næringarefni, hlaðiti utan um hið eiginlega egg,
sem sést í stækkunargleri eins og lítill díll í eggjarauðunni. Egg
dýranna eru annars hvert öðru lik, þau eru ein hnattmynduð frutnla
{cella) eða lítil blaðra fylt tærri kvoðu með fastari kjarna í miðju.

Sæðiö, sem myndast í æxlunarfærum karldýrsins, er
vanalega gráleitur vökví. Skoði maður þaö með góðri smásjá, sést í
því urmull af ofursmáum, en fjörugum, lifandi verum, sem nefnast
sáödýr (spermatozooii). Pau eru mismunandi útlits hjá hinum ýmsu
dýrum. Sáðdýr mannsins eru svo bygð, að fremri hlutinn er
spjótmyndaður, mjókkar svo að aftan og verður að langri
þveng-myndaðri rófu. í fremri endanum sést fastari kjarni, eins og í
egginu, og eru þau ein frumla, en margfalt minni að vextí. Dýrin
— ef dýr skyldi kalla — eru í sífeldri hreyfingu og synda áfram,

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:05:17 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1901/0115.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free