- Project Runeberg -  Eimreiðin / VII. Ár, 1901 /
165

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

65

síðustu lög, en í þetta skifti hafði áhuginn fyrir þessari nýju stööu
borið hærri hlut. Nú rankaði hann fyrst við því, að hann var
mat-þurfi.

»Já, ég þyrfti líka eitthvað að nærast a. Það er svekkjandi
að sitja á fundum og halda langar ræður um þungskilin málefni.«

»Þú getur étið graut — hann er þarna í pottinum —- og mjólk
er niðri í kjallara, ef þú vilt. — — Það hafa víst veriö heyrandi
ræður, sem þú fluttir á fundinum I Þér hefði verið sæmra að sitja
heima og dytta í skörðin, sem uxinn hans Gríms er tvívegis búinn
að brjóta í girðinguna.«

»Grímur er vænn maöur,« sagði Jón og stóö sig sem hetja,
»og uxinn hans skal friðhelgur, hvar sem hann finst í minni
land-areign. Hann flutti í dag langa og vel hugsaða ræðu á fundinum,
um að ég væri kosinn sem járnbrautarnefnd til að fara og fa
pen-inga hjá stjórninni í Wintiipeg, og nú er ég nefnd og fer sem
nefnd.«

»Kjósa þig fyrir járnbrautarnefnd! Já, gub veri fjandanum
náðugur! I flestu þykir mér þið ætla að fara að rázkast. Ég held
þér og ykkur væri sæmra aö hiröa betur um konuna og kýrnar,
en þið gerið, þær kynnu þá aö gera dálítiö betur gagn, en aö vera
aö rázkast í járnbraut og ööru, sem þið skiljiö ekkert i.«

Þetta féll Jóni illa aö heyra. Honum fanst það ekki eiga viö,
aö tala þannig um jafnmikilsvert mál. »Paö eru nú þín orö,
As-dís min,« sagöi hann, »og mér bregöur ekki viö aö heyra slikt; en
þaö mun sannast á mér, þaö sem Porsteinn heitinn á Yxnabakka
sagöi, aö enginn er spámaður metinn í sinu fööurlandi. Á
neyö-arinnar tímum kjósa þjóðirnar sína vitrustu og beztu menn til aö
reka erindi sin. Var ekki Jón Sigurðsson kosinn til aö tala máli
þjóðarinnar viö kónginn, likt eins og ég er nú? Nú hef ég
nefni-lega veriö kosinn nefnd, og ég fer og segi viö stjórnina: ’Okkur
þarna noröur frá vantar járnbraut’, segi ég. ’Viö vinnum baki
brotnu.«–

»Svei attan! þú skyldir þá nenna aö færa mér vatn i fötu
eöa höggva spýtu i eldinn, nema ég segi þér þaö. — Ætlarðu
annars að gera viö girðinguna, eða á uxinn aö éta upp hvert strá
úr túninu?«

Jón gåt ekki fengiö af sér aö fara aö gera það. »Nú kalla aö
önnur háleitari störf en aö gera viö giröingar og reka ut uxa. Eg á aö

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:05:17 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1901/0181.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free