- Project Runeberg -  Eimreiðin / VII. Ár, 1901 /
195

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

195

á hljóðunum, ýmist belji menn alt, hvað af tekur, eða »rauli í
lægstu nótum«.

Og til skamms tíma hefir sú skoðun verið ríkjandi heima, aö
sá væri mestur söngmaðurinn, sem »hæst« syngi. Á skólaárum
mínum varð ég oft var við leifar af henni í söngfélögum í
Reykjavik, þar sem ætla mætti þó, að söngþekking og söngsmekkurinn
væri skárstur. Þá menn hefi ég þekt þar, sem léku þaö að list
og vana, að hvíla sig eina og eina ljóðlínu, til þess að geta því
betur náð sér niðri á þeim næstu. Piano og þianissimo þektust
þar ekki. Pau vóru sungin mezzo forte. Mezzo forte, forte og
fortissimo táknaði, eins sterkt og unt er. Petta er svo öfugt,
sem orðið getur, því ekkert prýðir margraddaðan söng eins og
það, að tilbreytni (»nuance«) sé í söngnum; ef hún er engin eða
ónóg, þá er ekkert eða lítið í sönginn varið, því heita má, aö
hann standi og falli með þessu. Hitt, að hver kosti kapps um
að låta sem mest á sér bera, það verður aldrei vítt um of. I
kórsöng á hver rödd að samlagast annarri svo, að engin heyrist
sérstök; ef fjórraddað er sungið, þá á svo að heyrast, sem fjórir
syngi, hve margir sem það kunna að vera. Fyrrum þótti sá bestur,
sem »hæst« hafði; nú er kominn tími til ab kveða þá kenningu
niður.

Pað er langt, siðan fariö var aö fást við söngkenslu á Islandi.
I Hólaskóla og Skálholtsskóla var nemendum kendur söngur eftir
Grallarasöngfræðinni {ApþencLix J>órðar biskups Porlákssonar, aftan
við VI. útg. af Grallaranum, 1691). Peir læröu lög við sálmana
með öllum þeim »hnykkjum og rykkjum og dillandi viðhöfn«, sem
þá og seinna tíökaöist. Og fram á daga Péturs Guðjóhnsens
■má kalla, að ekkert væri sungið á íslandi annað en sálmalög og
rimnalög. I Reykjavíkurskóla eldra og Bessastaðaskóla lagðist
söngkenslan niður, en þegar skólinn var fluttur til Reykjavikur
aftur, þá var byrjaö á henni að nýju, og frá þeim tíma hefir hún
haldist þar við, þó hún sé höfð út undan og lítill sómi sýndur.
Nú mun söngur vera kendur í skólum víðast hvar um land.

Og þó á Island engan söngkennara og hefir aldrei
átt. Pað, sem kent er í skólum, er ágrip af almennri söngfræði,
þar sem mest rækt er lögð viö kensluna og margrödduð
söng-lög. Ég legg hér engan dóm á, hvort þetta er rétt eða röng
aðferð. Ég fer ef til vill frekar út í þá sálma síðar. En þetta
er ekki söngkensla i orðsins þrengri merkinga, því hún er einkum

13*

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:05:17 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1901/0211.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free