- Project Runeberg -  Eimreiðin / VII. Ár, 1901 /
228

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

228

»Ég var að hugsa um að biðja þig að lána mér sjalnálina þína,
silfurnálina, ef þú þyrftir ekki á henni að halda,« sagði þá Anna
við móður mítia, en móðir mín hatði lánað silfurnálina sína, og hún
átti ekki nema eina, svo Porbjörg og Anna urðu báðar aö fara
svo búnar.

Ég hálfkendi í brjósti um blessaðar stúlkurnar, að þær skyldu
þurfa að fara svona erindisleysu, hver eftir aðra, og það segi ég
satt, að hefði ég átt nógar Bleikálur og nógar silfurnálar, þá heföu
þær staðið þeim til boða, en því var ekki að heilsa.

Ég hafði nú frið um stund, og faðir minn kom heim, eins og
til stóð, en rétt eftir nónbilið byrjaði önnur umferðin. Pá kom
allur hópurinn í sömu röð og áður og í sömu erindagerðum,
nema aö Steini á Hóli fluttí mér nú enga »ísafold«, og nú mintist
enginn á silfurnálina. Aumingja-fólkið hafði hlaup og lítiö kaup
í þetta skifti eins og fyr um daginn, því faðir minn hafði lánað
Bleikálu manni, sem hann átti von á um kvöldið. Hún. var höfð
heima við túngarð, og sleikti í sig eltingarskúfana, sem uxu utan
í garðinum, í mestu makindum. Pó var eins og hún reisti eyrun
lítið eitt, þegar biðlarnir gengu fram hjá henni, eins og hún væri
að stríða þeim.

Maðurinn, sem átti að fá Bleikálu, kom ekki um kvöldið, en
frændi okkar kom og gisti hjá okkur um nóttina. Um
morgun-inn var hestur hans strokinn, svo honum veittist sú ánægja að
sitja á Bleikálu á þjóðhátíðina, því ekki var kostur á öðrum hesti,
og það er sannast að segja, aö ekki var Bleikála jungfrúleg, þegar
hún fór af stað. H. G.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:05:17 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1901/0244.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free