Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
229
Henry Ward Beeeher.*
Háttvirti forseti. Heiðraða samkoma. Konur og menn.
Fyrir tveimur árum (1892) dó frægasti prestur Englands, C. H.
Spurgeon. Á kirkjuþingi 1892 hélt ég tölu um hann. Hún er prentuð
i 2. árgangi »Aldamóta«. Einmitt um sama leyti komst ég lítið eitt i
kynni við Jónatan (Uncle Sam), eins og kunnugt er (»Tjaldbúðin« III,
bls. 3—21). Við töluðum margt saman og fórum í mannjöfnuð með
mönnum Jónatans og Jóns Bola. Ég spurði hann að því, hvort hann
á 19. öldinni hefði átt í preststöðu nokkurn jafnoka Spurgeons.
Jóna-tan brosti við og mælti: »Hefir þú aldrei heyrt nefndan Henry Ward
Beecher. Ef í mannjöfnuð skal fara, þá er mér óhætt að skipa
honum mót Spurgeon.« — Með því að ég hefi áður talað um Spurgeon,
finst mér skylda mín að tala um Beecher.
Árið 1638 kom »púrítana«-hópur frá Englandi til Vesturheims
undir forustu séra Jóns Davenport’s og settist að í Nevv Haven. Þeir flýðu
vestur um haf, til þess að geta þjónað guði sínum í næði og friði.
í hópi þessum var Hannah Beecher. Hún var ekkja. En með því
að hún var dugleg yfirsetukona, þá fékk hún að fara með flokknum yfir
hafið. Sonarsonur hennar, Nathaniel að nafni, átti konu af velskum
ættum og með henni son einn, er Davíð hét. Feðgar þessir, hver
fram af öðrum, vóru járnsmiðir og rammir að afli. Davíð Beecher var
og auk þess mesti gáfumaður, námfús og víðlesinn. Hann kvæntist 5
sinnum og átti mörg börn. Ein kona hans var af skozkum ættum.
Með henni átti hann (1775) son einn, er varð víðfrægur maður:
Ly-man Beecher. í æðum hans rann þannig enskt, velskt og skozkt blóð.
Lyman Beecher varð maður þríkvæntur. Fyrsta kona hans hét
Roxana Foote. Hún var komin af manni þeim, sem forðum bjargaði
Karli I. Englakonungi og faldi hann i eik. Sakir þess var hann
tek-inn i tölu tignarmanna og hafði eik að skjaldarmerki. Einn af
for-feðrum hennar var og Andrew Ward. Hann fluttist 1630 vestur um
haf (til Boston) á skipinu Arbella. Þeir Wardarnir vöru merkismenn,
kunnir að dugnaði bæði í hernaði og stjórnmálum. Lyman Beecher
og Roxana Foote giftust 1799. Börn þeirra, 8 að tölu, grétu við
bana-sæng hennar (1816). Öll vóru börnin einkar-efnileg. Tvö þeirra hafa
orðið stórfræg. Annað var stulka, Harriet að nafni. Hitt var drengur.
Um hann tala ég i kvöld. Nafn hans var Henry Ward Beecher.
H. W. Beecher er fæddur 24. júní 1813 í Litchfield i
Connecti-cut. Arfgengi hans var mikið og fagurt. Af föðurfrændum sínum erfði
hann hraustan líkama og frelsisþrá »púrítana«. Af föður sínum erfði
hann málsnild, áhuga og dugnað. Af móðurfrændum sínum erfði hann
göfugmensku og höfðingskap, fögur einkenni fornenskra aðalsmanna.
* Örstutt ágrip af tölu, sem ég hélt í Wirmipeg 1. marz 1894. Hér er
prent-aður aðeins fyrri hlutinn af ágripi þessu. H. P.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>