- Project Runeberg -  Friðþjofssaga /
XXIV

(1866) Author: Esaias Tegnér Translator: Matthías Jochumsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (TIFF) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

XXIV

lengi, en við nálgan kristindómsins (og við þann tíma
miðar skáldið hjer sögu sína) hlaut þessi athugi
(and-vari) að vakna, sá athugi, sem eitt áf þrenriii gjörði
menn rammari heiðíngja enn áður (sbr. Hákon jarl), eða
kom raönnum til að »trúa ámátt sinn ogmegin*
(einkenni víkinga og afreksmanna), eöa þá til að taka
fús-lega við kristninni, sem var einkenni margra spakra
manna og siðlátra, sem gátu ráðið andastefnu tímans,
og þráðu siðabót á ójöfnuði og forneskju.

Útlistanir skáidsins á hringnum i II. kvæöinu eru
grundvallaðar á getgátum Finns Magnússonar i þá stefnu.

Á einum stað í Friðþjófssðgu varð eg var við
ber-sýnilega ósamkvæmni, hvað tímann snertir (anakronisme),
en það er lýsingin á hölla Angantýs jarls, sem er of
miðaldaleg, enda var menntan Orkneyinga í engu fremri
enn Norðmanna, nema ef miklu síður var. Þó á
óneit-anlega vel við að låta þd Friðþjóf fá fagrar viðtökur,
er þeir koma úr trölla höndum til siðaðra manna.

Að 6vo mæltu kveð eg Friðþjófssögu, og sel bana
íslands sonum og dætrum, og óska þess, aö hún megi
eins launa þeim, sem lesa, þeirra ómak, eins og hún
heflr launað rajer mitt erfiði, eigi með gróða njegjaldi,
heldur með fegurð og unaði andans.

Þýð arinn.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 03:19:42 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/fridtjof/0030.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free