- Project Runeberg -  Friðþjofssaga /
56

(1866) Author: Esaias Tegnér Translator: Matthías Jochumsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (TIFF) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

56

sjer þoknðu’ undan, sem frá nöðru-eitri;

eg litast um og sje, að helbleik hjátrú

hefur stolið máli, viti’ og rænu

frá þeim, er áður glumdu’ af glöðum vonum.

Þá sigrar Helgi; hásum feigðarrómi

hræðilegum eins og forðum, þegar

í Vegtamskviðu völvan spáði Óðni

hrakning ásaþjóð, en Helju sigur:

»Eg gæti dœmt þjer dauða eða útlegð

fyrir þessa sök að feðra lögum,

en sakir Baldurs, er þú svívirt hefur,

J>ú vægð skalt fá, en vinna skaltu nokkuð. —

í yestur hjeðan eyjar miklar standa;

Angantýr þeim ræður, jarl einn ríkur,

og meðan faðir minn hjer fyrir rjeð,

Qekk hann þaðan skatt, en síðan enginn;

ferð þá skaltu fara og sækja skattinn

og fœra oss að bótum dirfsku þinnar;

mœlt er, jarlinn hafi harðar krummur,

(Helgi mælti enn með köldu glotti)

og liggi’ á gulli eins og forðuto Fáfnir,

en Fáfnisbana’ inn unga skal nú reyna.

Þessi för þjer frægð má stœrri heita. \

enn fífla konur hjer á Baldurshaga.

í vor eð kemur vænti eg þín aptur

með virðing heim, og umfram allt með skattinn;

níðingu’r skaltu ella hvers manns heita

og hafa griðum fyrir gjört og landsvist«.

Með þessum dómi þingi kvað hann slitið«.

INGIBJÖRG:
»Og ráð þitt er? —«

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 03:19:42 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/fridtjof/0090.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free