Full resolution (TIFF) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
67
hann hristir sverðið stælta rjett við brjóstið
á sinni norn og segir: »hopaðu’ undan!«
Æ, Friðþjófur! hún hopar ei að heldur,
hún hlær að Angurvaðli og gengur rakleitt.
Þú þekkir eigi minn inn myrkva bróður,
og þ(n in hreina hetjusál ei kennir
ið haturþrungna djúp, sem ávailt sýður
í geði hans af grimmri heipt og öfund.
Aldrei gefur hann þjer systur sína;
hann selur fyrr af hendi líf og ríki,
og blótar systur sinni öldnum Óðni
eða Hringi karli, .sem hann berst við. —
Þó vonir blíðar bregðist þannig mjer,
eg ber mig vel, fyrst þú átt öruggt bjarta,
og þótt mig hrelli harmarökkrið svarta,
heilladísir aliar fylgi þjer!
Á armhring þínum tímann get eg talið,
þótt tregastundin verði þung og mörg,
unz heim þú kemur — hold er foldu falið,
þú finnur hvergi þína Ingibjörg«.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>