- Project Runeberg -  Friðþjofssaga /
89

(1866) Author: Esaias Tegnér Translator: Matthías Jochumsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (TIFF) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

89

sjer fögur lyptir upp ür sænum.
Af hömrum sjer hann fossa falla,
og frána gnæfa jökulskalla;
hann kveður nes og sjåvarsund,
og siglir undir goðalund,
þars sumri áður sætt og rótt
hann sat hjá brúði marga nótt.
»En grunar ekkert svannann svinna?
og sjer hún ei til ferða minna? —
tir Baldurshaga hringaþöll
er hilmis kann ske flutt i höll,
og grætur þar við hörpuhreim«.
Frá hofsins mæni vitt um geim
sjer valur kappans verpur þá
og vaskur öxl hans stöðvast á;
hann hristir fiður, hreifir klær
og hvössum vængjum loptið slær
og hvergi eirir haukur slingur;
að hlustum Friðþjófs nefi stingur,
sem vildi hvísla valið orð
í vinar eyra hrings frá skorö
og — kann ske hennar hinnsta vilja,
en hulda rún má enginn skilja,

Um nesið fram nú fleyið svífur
og fljótum skriði hrannir klífur,
sem hlæji móti heimaslóð,
en hetjan kát í lypting stóð.
Of augu bæði hvolfir höndu
og horfir beint á kunna strðndu,
en þótt hann hvessi hvarma gler,

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 03:19:42 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/fridtjof/0123.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free