- Project Runeberg -  Heimilisritið / 1943 /
M3:8

Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— Þú lendir í erfiðleikum, sagði
ég, þegar hann kom aftur að borðinu
til mín, ef þú leikur svona leik við
Dagoana.

— Því meiri erfiðleikar, því betra,
sagði hann stuttur í spuna.
Skil-urðu það ekki ennþá, Merton, að ég
er hættur að gæta varúðar.

Eg hef síðan hugleitt þessi orð og
orðið sannfærður um að hann talaði
eins og honum bjó í brjósti. Hann
drakk tvær og þrjár flöskur af gin
daglega. Hvað var betra að
seindrep-ast þannig, en að falla fyrir Dagoa?
Og hvernig sem á því stóð, þá
var honum sama’hvort hann var lífs
eða liðinn.

Tveimur vikum síðar komst ég
af tilviljun að stærsta leyndarmáli
hans. Eg hafði fengið mánaðar
gam-alt eintak af Tatler lánað og var að
fletta í því, þegar Jimmy kom inn.
Eg sneri mér þegar við, til þess að
ná í ginflösku ofan úr hillu, eins og
venjulega, en þegar ég ætlaði að
rétta honum hana, sá ég hann stara
með dauðsmannssvip á eina af
myndunum í blaðinu. Eg man glöggt
hve óhugnanlegur hann var á að h’ta,
hvernig hnúabeinin gljáðu
skjanna-hvít í gegnum sólbakað hörundið.
Hann stóð þarna í 4 eða 5 mínútur,
hreyfingarlaus. Svo gekk hann
orða-laust út. Og ég tók upp blaðið.

Merton þagnaði og fékk sé
wisky-sopa.

— Brúðkaup Lady Sylvia? spurði
ég, að þarflausu reyndar. Hann
kinkaði kolli.

— Eg sá Jimmy ekki í tvo daga.

Loks kom hann síðara hluta kvölds
og hallaði sér fram á borðið eins og
hann gerði oft.

— Hvar hefurðu alið manninn?
spurði ég glaðlega.

— Eg hef verið að reyna að
drekka mig fullan, sagði hann
sein-mæltur um leið og hann lagði aðra
hendina á handlegg mér og tók um
hann eins og stáltöng. — Og, við
allt sem heilagt er, ég get það ekki.

Þetta virðist ekki vera veigamikið,
þegar sagt er frá því í reyksal í
Lon-don. En þó að ég hafi séð og heyrt
sitt af hverju sem hefur markað
djúp spor í meðvitund mína —
ó-geðslegt og hryllilegt, sem mér
verð-ur ávállt minnisstætt, •— þá verður
það samt áhrifaríkasta augnablik
ævi minnar, þegar ég á þessari stund
stóð við barborðið og leit í
örvænt-ingarfull augu þessa manns —
mannsins sem gat ekki drukkið sig
fullan.

\ FTUR þagnaði Merton. Ég sagði
ekkert, því að mig grunaði að hann
væri horfinn aftur í tímann, lengst
suður í hitabeltislönd Afríku,
þeg-ar hann stóð við vínborðið í
ógeðs-legri krá, sem angaði af víndaun.
Og mér fannst ég líka geta séð fyrir
mér háan og hreinræktaðan
Eng-lending standa álútan við vínborðið
— manninn, sem ekkert hræddist
, lengur.

— Jæja, sagði Merton loks. Eg
verð að fara að slá botninn í þetta,
því i.ð það verður farið að loka
klvbbnum.

8

H EIMTLISRITIÐ

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 06:24:19 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/heimilisr/1943/0010.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free