- Project Runeberg -  Heimilisritið / 1943 /
M3:9

Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— Nokkrum dögum síðar, þegar
ég var að þurrka vínglösin, var
hurð-inni hrundið upp og inn komu tveir
Englendingar, sem voru klæddir eins
og þeir væru að íara í veizlu.

— Líttu bara á, Tommy! Hérna
er þá reyndar bar, sem betur fer,
sagði annar þeirra. Hvað eigið þér
til barmaður sæll?

Eg var í slæmu skapi, og mér
geðj-aðist illa að því að vera nefndur
barmaður.

— Nokkrar flöskur af eitri,
svar-aði ég, og voðalegt skap.

Þeir brostu.

— Eg furða mig ekkert á því
síð-arnefnda, sagði annar þeirra. Þetta
er voðalegur staður.

— Því treysti ég mér ekki að
neita, ansaði ég. Mætti ég spyrja
hvað veldur komu yðar hingað?

— Við fengum óveður, svo að
skip-stjórinn neyddist til þess að leita
hafnar og fá gert við eitthvað, sem
bilaði. Við vorum að koma í land til
þess að litast um hérna.

Eg leit út um glugga og sá stóra
lystisnekkju er lá fyrir akkerum í
höfninni.

— Þér þarfnist víst ekki
bar-manns, sagði ég. Ef þér getið
eitt-hvað notað mig um borð, þá býð
ég hákörlunum byrginn og syndi
strax út í skipið.

— Því miður getum við ekki
fjölg-að fólki um borð, svaraði hann. En
komið með vínföngin maður minn.

Ég var að leggja nokkrar
vínflösk-ur á borðið þegar Jimmy kom inn.
Hann gekk hálfa leið yfir gólfið,

en stanzaði þá eins skyndilega og
hann hefði orðið fyrir dauðaskoti.
í örfáar sekúntur hefði mátt heyra
saumnál detta.

— Nú! Svo það er hérna, sem þú
hefur falið þig, sagði sá af
aðkomu-mönnunum, sem oftast hafði haft
orðið. Ég býst ekki við því,
barmað,-ur, að þér þurfið að hafa meira fyrir
okkur.

Án fleiri orða gekk hann út — og
eftir andartak hélt hinn á eftir.
Þeg-ar hann kom á móts við Jimmy
hik-aði hann ofurlítið.

— Er hún hérna? sagði Jimmy
rámraddaður.

— Já, svaraði hinn, Hún er úti í
snekkju. Við erum þar margt
kunn-ingjafólk.

Svo fór hann út á eftir félaga
sin-um. Jimmy leit út um gluggann og
sá þá ganga að báti sinum og halda
út í skipið. Svo gekk hann til mín og
muldraði:

— Skrítin tilviljun, en alveg óþörf.

Eg gat ekki annað en dáðst að því

hvernig hann tók þessu, þótt ég væri
að vísu ekki vel kunnur öllum
að-stæðum. Hann fékk sér sinn
venju-lega ginskammt og fór síðan til
skrifstofu sinnar í birgðahúsinu.

CKÖMMU eftir sólsetur, þegar
myrkrið var að skella á, kom
bátur á fullri ferð frá snekkjunni.
Maður nokkur hljóp upp úr bátnum
er hann lagði að bryggjunni og
linnti ekki sprettinum fyrr en hann
var kominn inn í vínstofu mína. Það
var lágvaxinn maður, sá sami og

9 H EIMTLISRITIÐ

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 06:24:19 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/heimilisr/1943/0011.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free