- Project Runeberg -  Heimilisritið / 1943 /
M3:10

Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

hafði komið fyrr um daginn og ég
áleit vera eiginmann Sylvíu.

— Hvar er hún? hrópaði hann.
Hvaj; er konan mín, hundtyrkinn
þinn?

Eg sá að maðurinn var örvita af
æsingi.

— Verið þér rólegur, sagði ég. Ég
hef ekki hugmynd um konu yðar.
Eg hef ekki einu sinni séð hana.

— Það er þá helvítis
falshundur-inn! öskraði hann. Eg sver, að ég
skal skjóta hann í magann ef hann
hefur vogað sér að fremja slikt
ó-þokkabragð.

— Reynið þér að hugsa eins og
maður, sagði ég gramur. Ef þér
er-uð að væna Jimmy um —

Eg hætti við setninguna, því
Jim-my stóð í dyrunum.

— Kvikindið þitt!
Hundtyrkjalús-in þín! Hvar er Sylvía?

— Um hvern fjandann ertu að
tala? spurði Jimmy, og rödd hans
var hörð.

— Hún fór í Iand síðdegis og
sagð-ist ætla að koma aftur eftir
klukku-tíma, sagði hinn. Báturinn fór að
sækja hana að þeim tima liðnum,
Hún hefur ekki sézt. Það eru
fjórir tímar síðan. Hvar er hún?

Hann miðaði skammbyssu á
Jim-my.

— Fyrir fjórum tímum! Clavering!
Guð hjálpi okkur! Blessaður stingdu
byssunni í vasann. Það er ekki tími
til þess að vera með einhver
skrípa-læti núna.

Hann sneri sér að mér og sagði:

10

Hefur þú orðið var við Lady
Claver-ing?

— Nei, svaraði ég, og sami óttinn
greip okkur báða.

— Hvað sagðist hún ætla að gera?
spurði hann mann hennar.

— Skoða þorpið, sagði
Claver-ing breyttri röddu. Hann virtist
skyndilega hafa lagt allt sitt traust
á Jimmy.

•— Ef hún er hvergi hérna, sagði
Jimmy, hlýtur hún að hafa gengið
inn fyrir þorpið, og það er orðið
almyrkt eftir fimm minútur.

— Hvað í dauðanum er hægt að
gera? æpti Clavering. Hvað eigum
við að gera? Við getum ekki látið
hana vera eina í náttmyrkrinu,
yf-irgefna í þessu hryllilega landi! Hún
hlýtur að hafa meitt sig, liklega
mis-stigið sig.

Ofurlitla stund þögðu allir.
Okkur ógnaði þær hættur sem yfir
henni vofðu. Það voru ekki
ein-göngu villidýr og hitabeltisveiki, sem
vofu hættuleg hvitri konu þarna.
Skyndilega kom innfæddur drengur
sem vann hjá Jimmy, þjótandi inn.
Hann hafði hlaupið svo hratt að
hann stóð á öndinni.

— Dagoarnir náðu henni, sagði
hann másandi og blásandi.

Okkur brá. Jimmy sagði rólega:

— Pedro Salvas er grunnhygginn
aumingi. Clavering! Farðu út i
snekkjuna og komdu með alla
karl-menn, sem þú hefur yfir að ráða,
velvopnaða i land. Og ef ég er ekki
kominn eftir þrjá tíma, skaltu halda
með lið þitt yfir mýrina að húsi

H EIMTLISRITIÐ

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 06:24:19 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/heimilisr/1943/0012.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free