- Project Runeberg -  Heimilisritið / 1943 /
M3:22

Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

f FÖLU skini mánans lá Lava-He.

Það rikti þögn, dauðaþögn í
heitu næturloftinu. Bruce Gregory
skreið varlega út úr kofa sínum,
stað-næmdist stutta stund í skugganum
og hlustaði: Til vinstri frá kofanum
gat hann aðeins grillt í höll
drottn-ingarinhar.

En hann hvorki heyrði né sá
nokk-uð grunsamlegt. Eina hljóðið sem
rauf þögnina var niður
Amerus-lindanna, lindanna, sem fossuðu og
ólguðu eins og þær heíðu löngun til
þess að brjóta fjötra sína og flæða
yfir Lava-He.

Á daginn heyrðist niður lindanna
varla, hann hvarf í öðrum hljóðum
dagsins, en nú, þegar nóttin ríkti,
varð hann sterkari, næstum því
ógnandi og Bruce, sem var
sárþjáð-ur af taugaáreynslu, fannst eins og
loftið titraði, og að vatnsniðurinn
segði: „Flýttu þér, flýttu þér, flýttu
þér — dauðinn liggur í leyni á
Lava-He!"

Það var hrollur í honum, er hann
lagði af stað eftir stígnum sem lá
til þorpsins. Einu sinni nam hann
staðar, því að honum virtist hann
greina eitthvert hljóð að baki sér.
Hann leit við, en stígui’inn teygðist
upp brekkuna í tunglsljósinu, og
það voru aðeins blöð trjánna, sem
dönsuðu draugadans í silfurgliti
mánans.

Hann hélt áfram og fór í gegnum
þorpið, sem var þögult og autt. Eina
mannveran, sem hann varð var við,
var beiningamaður, sem svaf undir
pálmatré og hringaði sig í kuðung

eins og hundur. Hann stanzaði
ekki fyrr en hann kom þangað, sem
Vao hafði kallað bústað kvennanna,
en var í raun og veru gamalt og
fú-ið fangahús.

Þegar hann kom fyrir eitt horn
hússins kastaði hann sér eldsnöggt
niður á bak við runna. Skammt frá
honum stóð hálfsofandi varðmaður.
Það var eins ’og hann hefði orðið
var við eitthvað, því að hann gekk
að húshorninu og það blikaði á
spjót og skjöld sem hann bar. Bruee
beið eftir færi og þegar maðarinn
sneri baki að honum, stökk hann a
hann eins og stór köttur og þeir
féllu báðir til jarðar. EfVr fáein
augnablik hafði hann keflað
mann-inn, bundið rammlega hendar hans
og fætur og dregið hann inn í
runn-ann.

Hann hlustaði ofurlitla stund og
leit í kringum sig, en það virtist
enginn hafa orðið var við
hávað-ann, sem kom við það, þegar þeir
ultu um og spjótið slóst við
skjöld-inn.

Svo fikaði hann sig hljóðlaust að
klefanum, þar sem Dolores sat inni •
lokuð. Hann lagðist niður og hvisl
aði nafn hennar inn undir hurðina.

Hún kom að dyrum og hann
hvísl-aði hátt: „Gakktu svolítið fjær, ég
ætla að brjóta þessa fúadrumba.
Við verðum að grípa tækifærið og
flýja héðan í nótt!" Hann kastaði
sér á hurðina og eftir íitla stund
hafði hann brotið hana upp. Dolores
kastaði sér í faðm hans.

„Guði sé lof fyrir að þetta hefur

22

H EIMTLISRITIÐ

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 06:24:19 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/heimilisr/1943/0024.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free