Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
„Eg hata ykkur!" Og án þess að
virða þau fremur viðlits, gekk hún
út úr viðtökusalnum.
1^-VÖLDIÐ eftir lá skip fyrir
akk-erum hjá Vulutanganum á
Lava-He. Lifvörður
drottningarinn-ar og hópur annarra innfæddra
manna stóð á ströndinni og kvaddi
hvíta manninn og hvítu konuna, sem
voru að fara í lítinn bát er sendur
hafði verið frá skipinu, til þess að
sækja þau.
Þegar báturinn lagði frá landi,
hófu hinir innfæddu spjót sín og
skildi á loft í siðustu geislum
kvöld-sólarinnar. Bruce þrýsti Dolores þétt
að sér og kyssti hárlokka hennar.
„Guði sé lof. Við erum loksins
komin burt frá þessum stað og
þess-ari hræðilegu konu", hvíslaði hann.
„Hún kom ekki til þess að kveðja
okkur", sagði Dolores, „en sjáðu
Bruce — þarna er hún — þarna
uppi!"
Bruce leit upp og horfði þangað
sem hæðir Volulutangans gnæfðu
hæst við himinn. Þar stóð hún þögul
og kyrr eins og hún væri höggvin
úr steini. Mynd þessarar fögru konu
mótaðist skýrt við koparrauðan
himininn. Hún hélt höndum fyrir
augu, vegna birtu hinnar sökkvandi
sólar, og horfði til þeirra.
Ósjálf-rátt lyfti Bruce annarri hendinna og
veifaði.
Myndin uppi á hæðarbrúninni
lyfti hægri hendinni, en aðeins
ör-litla stund. Það var eins og hand-
leggurinn hefði orðið máttlaus
jafn-skjótt og hann lyftist.
Hin þögla ljósleita vera gnæfði
við húmblæjur hverfandi sólarelds.
Þau sáu veruna hreyfa sig, hefja
hendurnar til himins í ástriðuríkum
sársauka, standa andartak í þeirri
stöðu, hniga síðan máttvana til
jarðar, og liggja svo eins og
and-vana á jörðinni.
Varir Dolores skulfu.
„Veslings Vao," hvíslaði hún,
„vesalings hvita, vilta drottning".
Og hitabeltisnóttin breiddi möttul
sinn yfir hafið og huldi Lava-He og
konuna sem lá á naktri jörðunni í
konungsríki sínu og grét, grét eins
og einungis hvít kona getur grátið,
kyrrlátt, ástríðulatist, vonlaust.
Láttu ekki svona, Jón!
Hversvegna leitar þú ekki til
skrif-stofustúlkunnar þinnar, eins og
for-stjórar eru vanir?
26
H EIMTLISRITIÐ
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>