- Project Runeberg -  Heimilisritið / 1943 /
M3:37

Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

Alltaf fram á leið ~

Eftir F. B. Davis, jr.

forseta Bandaríska gúmmífélagsins.

T-jEGAR ég var lítill drengur, sagði
faðir minn mér stundum
sög-ur af ferðalögum og ævintýrum í
fjarstæðukenndum
framtíðarfarar-tækjum. Ég sagði þá einu sinni:

„Pabbi! Heldurðu að menn
ferð-ist nokkurntíma í raun og veru
neðansjávar? Heldurðu að menn
fljúgi einhverntima?"

„Já, sonur minn", sagði hann,
„það munu þeir gera. Þú færð að
sjá neðansjávarskip. Þú munt lifa
það að sjá flugvélaflokka skyggja
himininn".

Svo sagði hann mér frá því, að
þegar hann hefði verið drengur,
hefði hann lesið við grútartýrur, og
hversu erfitt það hefði orðið fyrir
sig að trúa því á þeim tímum, ef
sér hefði verið sagt, að örfáum
ár-um síðar gæti hann lesið við
raf-magnsljós.

Hann sagði mér frá ýmsu öðru,
sem framkvæmt hefði vérið um hans
daga — símanum, grammófóninum,
járnbrautunum, skýjakljúfunum,
sæsimanum yfir Atlanzhafið, upp
götvun -x-geislanna og svo
fram-vegis.

„Það er búið að finna hér um bil
allt upp núna, er það ekki?" sagði
ég.

„Þetta segja allar kynslóðir, vinur
minn", sagði hann brosandi og
klapp-aði á kollinn á mér. „Þegar afi minn
var ungur, skýrði
einkaleyfisskrif-stofa rikisins þinginu frá því, að
svo virtist sem sá tími nálgaðist, er
framfarir mannkynsins hefðu náð
hámarki sínu. En vertu alveg
óhræddur drengur minn. Sérhver ný
uppgötvun leiðir alltaf af sér tvær
aðrar. Verkefnin í heiminvun þrjóta
aldrei".

Síðan hefur bifreiðin breytt
fjar-lægðarhugtökum landsins svo, að
hinir ýmsu landshlutar eru nú, sem
hreppar í sömu sýslu áður.
Flugvél-in spannar úthöfin, kvikmyndimar
flytja skemmtun og fræðslu til yztu
annesja menningarinnar.
Loftskeyt-in tengja saman andhverf lönd
hnattarins. Útvarpið kastar
varp-ljósi á veröldina i okkar eigin
heim-kynnum. Hið nýja læknislyf,
sul-fanilamid, hefur bjargað milljónum
mannslífa — og þó erum við aðeins
að byrja að kynnast þeim efnum,

37 H EIMTLISRITIÐ

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 06:24:19 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/heimilisr/1943/0039.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free