Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
sem heimurinn er gerður úr og
hvernig temja skal þau þannig að
farsæld fylgi.
Nú eru tækifærin meiri en nokkru
sinni fyrr í sögunni. Ég segi þetta
vitandi það, að margir æskumenn
okkar sjá naumast í gegn um sorta
skattabyrða, skuldabagga og ýmissa
annari’a örðugleika. Ég segi þetta
þrátt fyrir það, þótt sum
gamal-menni haldi þvi fram, eins og
venju-lega, að heimur versnandi fari, að
hrunið nálgist og að áður en vari
hverfum við aftur á
hestvagnaöld-ina.
Þetta er gamla sagan, en einhverra
hluta vegna hefur okkur aldrei
mun-að aftur á bak.
Ég hef þá trú, að hver sú þjóð,
sem getur framleitt gúmmí úr olíu,
silki úr kolum, ull úr mjólk, bólstur
úr kaktusum, nærfatnað úr gleri,
og bílgrindur úr baunum — sú þjóð
sé ekki í afturför — heldur
fram-för til auðugra og fullkomnara lífs
og betri, hamingjuríkari daga.
Sannleikurinn og Blysið
CINU SINNI endur fyrir löngu,
hóf Sannleikurinn sig allsnakinn
upp úr hinum djúpa brunni, sem
hann til þess tíma hafði falist í.
Hann var gamall og grettinn og allir
forðuðust hann. Loks mætti hann
Blysinu, sem var glæsilega og
rík-mannlega klætt og sindraði eins og
glitsteinar.
„Góðan daginn, Sannleikur sæll,"
sagði Blysið. „Hvernig stendur á því
að þú ert hér einn á förnum vegi?"
„Já, það er ekki gaman að því".
sagði Sannleikurinn. „Eg bið alla sem
ég sé um að styðja mig og styrkja,
en bænir mínar eru árangurslausar.
Eg er víst ekki ásjálegur."
Blysið brosti og sagði: „Þegar til
alls kemur, er ég eldri en þú og
þar að auki — get ég fullvissað þig
um — taka mannanna börn
venju-lega vel á móti mér. En — misvirtu
það ekki við mig, Sannleikur minn,
— hversvegna ertu nakinn? Það er
ekki skynsamlegt. Eg kem með
til-lögu. Líttu á slæðuna mína, hversu
síð hún er og víð. Eg skal sveipa
henni um þig og svo skulum við
verða samferða. Við munum bæði
hafa hagnað af þvi. Mennirnir
sem hingað til hafa ekki viljað taka
tillit til min, bjóða mig velkomið
þín vegna, en heimskingjarnir munu
hlusta á okkur bæði, þótt þeir haldi
að þeir hlusti aðeins á mig. Þá
verð-ur vel tekið á móti okkur, allsstaðar.
Sannleikurinn fellst á þetta, og
þau fylgdust af stað. Siðan hafa þau
skipt með sér verkum i samstarfi
sinu. Blysið gleður einfeldningana,
en þeir skynsömu greina
Sannleik-ann á bak við hina glæstu glitslæðu
Blysins og bjóða þau bæði
vel-komin.
38
H EIMTLISRITIÐ
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>