- Project Runeberg -  Heimilisritið / 1943 /
M3:45

Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

Þau dönsuðu í fjallablænum og danstónarnir

sveipuðu heillandi töfrahjúpi umhverfis þau.
Hún gat ekki varnað nýjum og nýjum
táraperi-um að hrynja glitrandi úr hálfluktum augunum
niður vangana, táraperlur, sem gátu táknað ást
eða skugga fortíðarinnar, eða ef til vill ótta við ó-

komna tímann.

skáldleg lýsingarorð til, sem hún
gat ekki notað til þess að lýsa
hon-um.

— Hver er hann? spurði ég hana.

— Joel West, verkfræðingur í
hernum. Hún hló. Eg þurfti að beita
öllum brögðum til þess að ná
hon-um í net mitt. Ó, hann er svo
karl-mannlegur, Susy. Við erum trúlofuð.

Eg lét það gott heita. Karla var
alltaf trúlofuð einhverjum.

En nú virtist það vera alvara. Hún
talaði stanzlaust umhann. Einhverju
sinni sagði hún hlæjandi:

— Eg skal segja þér það, Susy, að
ef ekkert skyldi verða úr þessu hjá
okkur Joel, þá ættir þú að krækja
þér í hann. Við megum ekki missa
hann úr fjölskyldunni.

Þetta voru léttúðug orð, en þau
vöktu hjá mér drauma, sem mér
vcru ósjálfráðir. Og þegar ég missti
Körlu á snögglegan og sorglegan
•hátt, jók það mjög á hryggð mína,
að þurfa að missa Joel líka, — og
draumana.

Nú var það rödd Joels sjálfs, sem
kallaði mig frá sorgum
fortíðarinn-ar.

45 H EIMTLISRITIÐ

— Eg fékk mánaðarhvíld frá
skyldustörfunum, sagði Joel, og mig
langaði til þess að sjá þig, Susy.

Eg fann blóðið þjóta fram í kinnar
minar.

— Það er fallegt af þér að koma
Joel. Hreinskilnislega sagt, þá er ég
mjög glöð yfir því að þú. komst.

Hann leit niður fyrir sig.

— Kannski dreymir okkur bæði,
Susy. Og kannske dreymir okkur
framvegis.

Skyldi hann ekki heyra hjartað
hamra í barmi mér?

— Gjörðu svo vel og gakktu inn,
Joel.

Við gengum inn í herbergið mitt
og ég hló lágt.

— Þetta herbergi er ekki stærra
en svo, að við rétt komumst fyrir í
því tvö.

Hann horfði brosandi í kringum
sig, en varð alvarlegur þegar honum
varð litið á mynd af Körlu. Og svo
sá hann mynd af sér. Þá brá fyrir
vonleysi í svip hans og það munaði
minnstu að ég táraðist. Eg var
feg-in því, að ég hafði ekki sent síðasta
bréfið, sem Karla skrifaði honum.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 06:24:19 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/heimilisr/1943/0047.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free