- Project Runeberg -  Heimilisritið / 1943 /
M3:62

Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

HTLUl

Úr daglega lífinu.

Þegar Halldór kóm heim var
kon-an hans farin út og hafði lokað
úti-dyrunum. Hann var lykilslaus og
hafði þvi ekki önnur ráð en bíða
eft-ir konu sinni.

Hann hafði rölt fram og aftur
fyrir framan húsið í klukkustund,
þegar konan hans kom loks.

„Hvað er þetta," sagði hún", „ert
þú hérna á labbi?"

„Já, ég er búin að ganga hérna
eins og glópur í klukkustund."

„Elsku góði. Lykillinn hangir þarna
á dyrastafnum."

„Það er laglegt,’" segir maðurinn
bálreiður. „Þú hleypur út og* skilur
lykilinn eftir þar sem allir geta séð
hann."

Stigamennska.

Nýlega kom það fyrir í New York,
að skuggalegur náungi stöðvaði
ís-lenzkan sjómann í illræmdu
hafn-arhverfi. Var sjómanninum skipað
að afhenda alla þá peninga sem
hann væri með, annars yrði hann
skotinn niður.

Sjómaðurinn hlýddi tafarlaust og
sagði um leið: „Eg býst við að þér
þurfið peninganna fremur með en
ég. Sennilega myndi ég fara eins að
og þér, ef ég væri í yðar sporum."

62

Bófinn fór með peningana og hvarf
út í myrkrið. En eftir litla stund
heyrði sjómaðurinn hratt fótatak á
eftir sér. Var stigamaðurinn þar
kominn.

„Hérna. Þú getur sjálfur átt þína
peninga. Eg vil engin viðskipti hafa
við aðra eins blábjána og þig!"

Kaneldrykkja.

Þrír menn sátu að drykkju í
kaup-túni nokkru. Voru kaneldropar á
borðum. Þegar líður á nóttu sofnar sá
drabbaranna er Daníel var nefndur.
Félagarnir töldu hann af og ortu
yf-ir honum etfirfarandi ljóð:

Lífið er eflaust aumara en hel,
þú drakkst þig kaldan, Daníel

í kanel.

Nú ætlum við sem vildum þér vel
að varðveita skrokk þinn, Daníel

i kanel.

Hjá sankti Pétri ég sjálfsagt tel,
að sál þín hressist, Daníel

í kanel.

Vertu nú sæll og sofðu vel.
Við syrgjum þig allir, Daníel

í kanel.

HEIMILISRITIÐ 16

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 06:24:19 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/heimilisr/1943/0064.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free