- Project Runeberg -  Heimilisritið / 1943 /
M3:63

Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

JV" VIKMYND AST JÖRNURNAR

* hafa ekki legið á liði sínu,
þeg-ar um fjársöfnun til styrjaldarþarfa
hefur verið að ræða. Nefna má það
til dæmis, að JANETTE
MACDON-ALD hefur haldið 12 konserta til
á-góða fyrir ameriska herinn. Ágóðinn
hefur numið 95.000 dollurum, þar af
15 þúsund sem greiðsla fyrir
endur-tekin lög og eiginhandarnafn hennar.

JOAN FONTAIN og OLIVIA DE
HAVAILLAND eru systur — í
raun og veru. Það er talið sennilegt
að þær verði valdar til þess að leika
sem systur í kvikmynd, sem taka á
bráðlega og heitir „Devotion."

TJEDY LAMARR leikur á móti
** WILLIAM POWELL í kvikmynd
sem nýlega hefur verið tekin og
nefnd er „Krossgötur". Það er sagt
að hún eigi framvegis að vera kona
Powells í kvikmyndum í stað
MYRNA LOY. Hér eru
leiðbeining-ar, sem Myrna Loy skrifaði Hedy
Lamarr, áður en byrjað var á
kvik-myndatökunni.

„Kæra Hedy. — Gættu þess að
svara William ekki einu orði, ef
hann er önugur. Og ef hann hefur

63 HEIMILISRITIÐ 16

ekki haft tíma til þess að borða
morgunverð, þá skaltu forðast a?;
láta hann sjá þig. En hann leyfir
þér alltaf að láta á þér bera og
dreg-ur sig jafnvel í skuggann þín vegna,
fyrir framan myndavélina. Honum
er illa við hávaða að ástæðulausu.
Hann hlær- bara ef þú brýtur
eitt-hvað út af boðorðum
kvikmynda-stjórans og hjálpar þér jafnvel. En
hlæðu ekki, ef slíkt kemur fyrir
hann. Þú skalt látast vera mjög
særð yfir því. Hann er bezta skinn,
ef maður kann Iagið á honum. —
Með hamingjuóskum — frá „fyrri
konunni" hans."

\ 7ERIÐ er að kvikmynda sögu
Hemmingways „For Whom the
Bell Tolls." (Hverjum klukkan
glym-ur). GARY COOPER leikur Robert
Jordan, en INGRID BERGMAN
leik-ur Maríu.

pvIANA BARRYMORE, dóttir hins
heimsfræga nýlátna leikara,
John Barrymore, er að byrja
leik-feril sinn. Hún leikur eitt
aðalhlut-verkið íkvikmynd, sem nefnist
„Arn-ar-riddararnir", og nýlega hefur
ver-ið tekin.

rjETTY GRABLE, sú sem lék í
Miami-myndinni sem var sýnd
á Nýja Bíó fyrir nokkru, er
fædd 18. desember 1916. Hún er
ljóshærð og vegur 56 kíló. Hún er
hreinskilin, góður félagi, dansar
dá-samlega og er ógift.



/

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 06:24:19 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/heimilisr/1943/0065.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free