- Project Runeberg -  Heimilisritið / 1943 /
M5:28

Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

ið vieður út af óstundvísi, þvi að
allir andlega þenkjandi menn séu
óstundvísir. Hann undrast það
mjög háðskur, hvað ég geti
hafa séð í fari þeirra karlmanna
sem ég þekkti áður en ég giftist
honum. Hann hneykslaðist á því.
að ég skyldi lialda að Brasilia
væri borg í Suður-Afriku. Hann
nennir ekki að hjálpa. mér til að
reita illgresið i garðinum, en
hef-ur gaman af að tína biómin. Hann
lofsyngur aldrei þær stúlkur, sem
ég er hrifinn af, og tekur
ómerki-legar ljóshærðar stelpur fram
yf-ir hinar fallegu vinkonur minar.
Þegar mig langar til þess að
skemmta mér, langar hann til
þess að vera einn með mér, en
þegar ég er þreytt, langar
hann til þess að fá gesti eða fara
út með mér.

EN SAJMT ELSKA ÉG HANN

1 sveitimii þekkir hann hvorki
puntstrá frá hundasúru né hrafn
frá spóa. Hann segir að öll blóm
hafi sömu lykt. Hann vilL vera i
gamla sportjakkanum sinum,
þeg-ar við förum i búðir, og þykist
vex-a heyrnarlaus, ef kunningjar
mínir kalla á okkur á götu;
af-sakar sig klaufalega til þess að
komast undan þeim, og lætur
mig svo um að verja
undanhald-ið. Hann gagnrýnir rikisstjórnina
vægðarlaust, þrátt fyrir það, þótt
fjölskylda mín sé fylgjandi henni.

EN SAMT ELSKA £G HANN.

Hann vill helst ekki fara á fæt-

ur á morgnana og ekki í rúmið
á kvöldin. Hann biður um brauð
á ólíklegustu tímum, og kallar
tennis boltaleik. Hann gerir gys
að hinni barnalegu heimsskoðun
minni og dregur upp hryllilegar
myndir af byltingunni, sem
fram-undan er, svo að ég verð
dauð-skelkuð. Hann sér fram á
ör-birgð allra, og börnin okkar
tek-in með valdi úr fangi mínu og
dregin inn í uppeldisheimili
rikis-ins. Hann þreytist aídrei á þvi
að skammast yfir hráu grænmeti
og segir að ávaxtamauk sé
ein-ungis handa mannætum. Haivn
sendir löng símskeyti, þegar eití
bréfspjald hefði nægt. Hann er
eldheitur hernaðarsinni þegar
liann talar við mömmu, sem
elsk-ar friðinn, en hinsvegar er hann
ákafur friðar.vinur, þegar hann
ræðir við bróður minn, sem er
liðsforingi í lofthernum.

EN SAMT ELSKA ÉG HANN.

Hann vill láta ljós loga, þegar
ég vil slökkva það. Og þegar
hann vaknar mn miðja nótt
þá er hann til með að fara að
út-skýra, hvað Lenin ætlaði sér
eft-ir byltinguna i Rússlandi. Hann
úthúðar þeim nútimaskáldum.
sem ég get skilið, en heldur
lof-ræður yfir hiniun, sem mér finnst
óskiljanlegir. Hann rífur niður
ögn fyrir ögn, allar þær
hug-myndir, sem ég hafði gert mér
um lífið og skilur mig eftir
vað-andi i villu og svíma. Hann
hryll-ir við dálæti mínu á rjómaís, og

28

HEIMILISRITIÐ

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 06:24:19 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/heimilisr/1943/0166.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free