- Project Runeberg -  Heimilisritið / 1943 /
M7-8:4

Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

verið um frekara samband að ræða
milli þeirra Saville. Hún mundi
enn eftir svipnum á honum, þegar
hann skýrði henni frá þvi, að þau
gætu ekki lifað af þeim launum, sem
hann hefði sem liðsforingi. t>au
kvöddust, er laufin voru að íölna og
regnúðinn læddist að jörðu.

„Eg get aldrei elskað aðra en þig",
sagði hann klökkur. Og hún efaðist
ekki um, að það var satt. Hún þrýsti
sér upp að honum. sundurkramin af
sorg, og gat varla trúað þvi. að hann
myndi yfirgefa sig. Ef hann hefði
beðið hana um að biða, þótt ekki
væri meira, þá hefði hún beðið.
Hann minntist ekki einu sinni á, að
hann kæmi aftur.

rjANN fór til Indlands — og
Marg-aret fannst líf sitt einskis virði.
Kunningjar hennar í London
vor-kenndu henni, en augnatillit þeirra
var þó dálítið illkvittið. Menn hlógu
að Leon Winston fyrir það, að hann
skyldi láta hana aumkvast yfir sig
aftur.

Þegar hann bað hennar sagði hún
,,já" án þess að hugsa sig um tvisvar
og lokaði augunum, þegar hann
kyssti hana, af því að hún sá fyrir
hugskotssjónum sér magurt og
sól-bakað andlit.

Þau fluttust i liús Leons, sem lá
rétt utan við London, stórt o’g með
öllum þægindum. Umhverfis það
var stór og skrautlegur garður.

Leon var andstæða þess, sem hún
taldi karlmann við sitt hæfi. Hann
var ljóshærður, værukær og fremur
stirðmæltur. Hann fór til London á

hverjum morgni, þótt hann hefði.
þangað vist lítið annað erindi, en að
eyða timanum í klúbbnum sinum.
En ef hún bað hann um að gegna
einhverjum erindum fyrir sig i
borg-inni svaraði hann, að hann hefði því
miður ekki tima til þess.

Hann var gjafmildur,
umhugsun-arsamur og bliður við hana. Ef hann
hafði orðið fyrir vonbrigðum með
hjónaband þeirra, þá lét hann það
að minnsta kosti ekki á nokkurn hátt
í ljós. Ef honum hefur þótt það
mið-ur, að brúður hans skyldi gráta alla
brúðkaupsnóttina og jafnan siðar
krefjast þess, að hann léti sig í friði,
þá lét hann það aldrei uppi. Hann
var yfirleitt mjög dulur i skapi.

/^vG þannig höfðu þrjú ár liðið. Á
^ hverju.ári hafði Margaret sagi
við sjálfa sig, að nú skyldi hún re.vna
að gleyma Saville. afmá hinar döpru
endurminningar sinar og helga sig
heimilinu. En það brást ekki, að
þeg-ar hún hafði ákveðið þetta, sendi
Saville henni eitt af sinum þurru,
gamansömu bréfum frá Indlandi
eða nokkrar ljósmyndir af sjálfum
sér — og þá ýfðust á ný hin gömlu
hjartasár hennar. Og margsinnis
varð henni hugsað til þeirra stunda,
þegar hann kæmi a/tur.

Þetta var þriðji veturinn, sem
hann var fjarverandi og þau Leon
höfðu boðið sæg af gestum að dvelja
hjá sér yfir helgina eða lengur.
Margaret var fremur þungt í skapi.
Hún hafði beðið Leon um að gera
svolitið fyrir sig i borginni. en hann
hafði eins og venjulega svarað þvi

4

/’IEIMILISRITIÐ’.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 06:24:19 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/heimilisr/1943/0278.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free