Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
einu, -að hann hefði ekki tíma til
þess. Aldrei þessu vant hafði hún
rokið upp á nef sér.
„Hvað í ósköpunum ertu eiginlega
alltaf að gera í borginni?"
Hann hafði brosað, lyft annarri
augabrúninni og sagt:
„O, hitt og þetta".
Hún hafði litið rannsakandi og
undrandi á hann. í fyrsta sinn datt
henni í hug, að ef til vill leitaði
hann huggunar hjá annarri. Og
hvernig sem á þvi stóð, gerði þessi
grunur henni gramt i geði. Þvi
leng-ur sem hún hugleiddi þetta, þvt
sannfærðari varð hún um, að þannig
hlaut það að vera.
Hún gat ekki sætt sig við slíka
minnkun! Hún ætlaði i eitt skipti
fyrir öll að fá upplýst, hverms i
öllu lá. Ef hann var ótrúr henni,
gæti hún ef til vill krafizt
skilnað-ar. Og þegar Saville kæmi aftur frá
Indlandi — ef hann kæmi aftur, þá. .
Það var Ijótt að láta njósna um
manninn sinn — innst inni
skamm-aðist hún sin. En samt sem áður fói
Margaret sjálf til Londn-i til þess
að ræða við leynilögregluþjón. sem
ekki var i þjónustu þess opinbera.
Spæjarinn lofaði að láta hana vita
jafnskjótt og hann kæmist á
spor-ið. Hann fullyrti,’ að eitthvað hlyti
að vera grunsamlegt við það. að
maður hennar skyldi una sér svo vel
í borginni, fyrst hann hefði þar
eng-um störfum að sinna.
Margaret hélt heimleiðis
hnevksl-uð yfir sjálfri sér. Maðurinn hennar
hafði ávalt sýnt henni hlýju og nær-
gætni. Hún hafði ýtt honum til
hlið-ar og snúið til hans aftur." þegar hún
þurfti á honum að halda. Hann hafði
ávallt verið henni góður. þó að hún
hefði oft sýnt honum hið gagnstæða.
Samvizkubitið fékk vfirhöndina,
þegar hún kom á móts við næsta
pósthúsið í nágrenni heimilis
henn-ar. Hún gekk þangað inn og
skrif-aði simskeyti til spæjarans og bað
hann um að fresta framkvæmdum,
þar til hún talaði við hann aftur.
Þá tók hún eftir þvi. að þarna voru
svo margir, sem þekktu hana. að hún
hætti við að senda skeytið.
tjÚN fór inn í húsið
bakdyrameg-in og flýtti sér upp í herbergi
sitt, til þess að skipta um föt.
Bryt-inn varð var við komu hennar og
hún hafði naumast lokað dyrunum
á herbergi sinu, þegar hann kom
með miklu irafári.
,,Það hringdi karlmaður til yðar,
t’rú. Hann kvaðst heita Saville Cross
kafteinn — og ég átti að biðja yður
um að hringja hann upp. Hérna er
simanúmerið hans".
Hann leit forvitnislega á hana þvi
að hann vissi, hvernig öllu var varið.
Margaret stóð grafkyrr og dró
ekki andann litla stund. Þrjú löng
ár höfðu .iðið atburðalaus og nú
virtist sem allt ætlaði að gerast á
einni svipstundu. Sennilega lék
Leon tveim skjöldum; hún gæti losn
að við hann — og Saville, sá eini,
sem hún hafði nokkru sinni elskað.
var kominn aftíir.
Og hún hafði alltaf vitað, að ef
HEIMILISRITIÐ
5
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>