Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
IIITLUR
Eftirlætissaga Rockefellers
John D. Roekefeller hafði gaman
af því að segja skopsögur á
elliár-um sínum. Þetta var eftirlætissaga
hans.
I járnbrautarlest nokkurri
þrevtt-ist óstyrkur kvenfarþegi aldrei á því
að spyrja lestarstjórann ólíklegustu
spurninga. Síðasta spurningin var
þessi:
„Segið þér mér, hversvegna veifið
þér, þegar lestin á að fara af stað?"
Lestarstjórinn, sem var loks búinn
að missa þolinmæðina, sagði:
„O, þegar ég veifa táknar það
bara: farið til fjandans".
Einn af farþegunum, sem he.vrði
þetta óskammfeilna svar
lestarstjór-ans, aðvaraði hann og sagði að
kon-an. sem hann hefði verið að tala
við, væri eiginkona forstjóra
járn-brautarfélagsins. Lestarstjóranum
brá heldur en ekki í brún, gekk til
konunnar, tók ofan og fór af mikilli
undirgefni að biðjast afsökunar.
Hún sagði ekki orð — hún veifaði
bara til hans.
í pósthúsinu
Maður nokkur kom fyrir
nokkrum árum inn í
póstaf-greiðsluna í Reykjavik með sendi
bréf. Hajin keypti sér frímerki
og límdi það sjáJfur á umslagið.
En í ógáti lét hann mynd og
HEIMILISRITIB
stafi frímerkisins snúa á höfði.
Hann vék sér því að
póstþjón-inum og segir:
„Gerir nokkuð til þó að ég
hafi sett frímerkið á höfuðið?"
Hirm svaraði:
„Já, vissulega. Ef senda á
bréf-ið, þarf frímerkið að vera á
um-slaginu".
Heyrnardepra
Gamla konan í kotinu er að
ljúka við að lesa sendibréf, þar
sem þeim hjónunum er tilkynnt,
að dóttir þeirra, sem dvalið hafði
í næsta héraði, sé dáin.
Hún snýr sér þvi að bónda
sín-’um, se:n er ákaflga heyrnarsljór,
og kallar:
„Hún dóttir okkar er dauð!"
Karlinn starir á hana
stein-hissa og svarar:
„Ha! Sendi hún okkur sauð?"
„Hún dóttir okkar er önduð!"
hrópar kerling hálfu hærra.
„Ha? Fór hún suður með
sönd-um?"
Kerling verður gröm og
öskr-ar í eyra karlsins:
„Hún dóttir okkar er komin í
Himnarfki!"
Karlinn hristir höfuðið og
seg-ir mæðulega:
„Hvaða bölvað flakk er á
stelp-unni. Er hún nú komin í hina
víkina".
35
I!
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>