- Project Runeberg -  Heimilisritið / 1943 /
M7-8:36

Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

Andmæli — og þó . •.

Það hefur verið talið
óskyn-samlegt og jafnvel hættulegt að
andmæla þjóðhöfðingja — þótt
slíkt sé að vísu oft vandkvæðum
bundið. Trúnaðarmaður
Napole-ons, Ney márskálkur, kunni samt
lagið á þvi að leiðbeina honum á
réttan hátt. Dag nokkurn ræddu
þeir um hina alkunnu
rannsókn-arleiðangra Cooks.

„Það var sorglegt!" sagði
Na-poleon, „að Cook skyldi adazt
skömmu eftir fyrstu ferð sína".

„Já það má nú segja, yðar
há-tign", svaraði Ney. „En til
allr-ar hamingju lét Cook það ekki
á sig fá, heldur lagði af stað í
næsta leiðangur sinn eins og
ekk-ert hefði í skorist".

Sjóferðaævintýri

Amerísk dansstúlka fór eitt
sinn með skemmtiferðaskipi til
Suðurlanda.

Þegar hún fór að dansa aftur
að hálfum mánuði liðnum,
söfn-uðust starfssystur hennar
um-herfis hana og spurðu frétta.

„Þetta var hryllilega
andstyggi-leg ferð", sagði hún. „Káetan
mín var niðri á neðsta dekki og
við matborðið mitt voru sex
upp-þornaðar og gamlar piparmeyjar.
Það _var alveg aglegt".

Hinar dansstúlkurnar kinnkuðu
kolli. Þær gátu vel skilið hana.

„Já, en nú kemur það versta",
sagði hún. „Af einhverjum mis-

skilningi átti káetufélagi minn
að vera karlmaður. Hann kom
inn þegar ég var nýháttuð fyrsta
kvöldið".

„Hvað ertu að segja?" sögðu
hinar.

„Já, hvað finnst ykkur. En það
sem var allra, allra verst —
hann kunni ekki orð í ensku!"

Hafði drepið þá alla

Narvaes hét spanskur
einræð-isherra, sem uppi var á 19. öld.
Þegar hann lá banaleguna spurði
skriftafaðirinn: Fyrirgefur yðar
hátign óvinum sínum ? Hinn
deyjandi maður svaraði: Hvaða
óvinum ? Ég hef látið drepa þá
alla.

Norsk nútímafyndni

I norskum kaupstað, heimsótti
hálfbjáni nokkur bæjarstjórann,
sem auðvitað var kvíslingur.

„Mig langar bara til þess að
spyrja yður einnar spurningar",
sagði hálfbjáninn. „Hvað ætlið
þér að gera, ef Þjóðverjar tapa
stríðinu ?"

Bæjarstjórinn brosti góðlátlega
og sagði: „Þjóðverjar sigra
á-reiðanlega".

„En ef þeir myndu nú tapa",
spurði hinn og horfði sljóum
augum á höfðingjann.

„0, ef svo færi, myndi ég
setja upp hattinn og fara".

„Hathin? Á hvað ætlið þér
að setja hann?"

36

HEIMILISRITI3D

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 06:24:19 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/heimilisr/1943/0310.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free