Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
IN AQUILONEM NOCTURNUM.
Þegi þú, vindur!
Þú kunnir aldregi
hóf á hvers manns hag;
langar eru nætur,
þars þú, inn leiðsvali,
þýtur í þakstráum. —
AÐ BÓN JÓHANNS ÁRNASONAR.
Hér liggja sofin
und svarðar-meni
elskuð æsku-blóm;
blíðari blundi
að brjósti móður
svaf ei sonar auga.
Hannes og Pétur!
hnignir moldu að
bræður á barnsaldri!
hvar þið nú sannið,
— því það sannið þið, —
að farsæll er hver saklaus sofinn?
Vonar-stjarna
vandamanna
skundaði að ský-baki;
má-a maður
í moldar-fjötrum
fram yfir líf líta.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>