- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / I. Ljóðmæli, Smásögur o. fl. /
10

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 10 —

SKRADDARA-ÞANKAR UM KAUPMANNINN.

Breytt kvæði.

Þú, sem daglega líða leið

lífs fram að enda sér,

náungann svíkur samt, um skeið

sama gleyminn að fer;

þinn spillti þanki er

þreföldum gróða-fjötur-svefni bundinn.

í léttu rúmi liggur þér,
þótt líðir sálar tjón;
ágirnd fíkin, sem brjóst þitt ber,
blindar svo hjartans sjón,
magnaði mammons þjón!
munaðarlausu ekkjuna sem grætir.

Vertu ekki að huga í vettling þinn,

hann verður fullur senn;

þarna vantar í þumalinn,

því mega borga enn

skapþungir skilamenn

skuldina lognu á svikatöflu þinni. —

Fátæktar-tár á frómri kinn

feginn þú renna sér;

að hrekkjum þínum hálf-grobbinn

hlærðu, — sem von til er,

en óbænum árnar þér

auminginn svikni sårt og hyski þínu.

En hvergi hér um hirðir þú,
huggun þín gjaldið er;
þitt öfundaða aura-bú
aldrei samt gleði lér,

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:23:59 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/1/0020.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free