Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 58 —
þar sem við búann brattra kletta
æðandi fossar eiga tal,
þar sem að una hátt 1 hlíðum
hjarðir á beit með lagði síðum; —
þótti þér ekki Island þá
íbúum sínum skemmtan ljá?
Þú komst á breiðan brunageim
við bjarta vatnið fiskisæla,
þar sem vér áður áttum hæla
fólkstjórnar-þingi frægu um heim;
nú er þar þrotin þyrping tjalda,
þögult og dapurt hraunið kalda; —
þótti þér ekki ísland þá,
alþingi svipt, með hrellda brá?
Nú heilsar þér á Hafnar slóð
heiman af Fróni vina flokkur;
við vitum glöggt, að anntu okkur,
frakkneskur maður, frjálsri þjóð;
því andinn lifir æ hinn sami,
þótt afl og þroska nauðir lami.
Menntanna brunni að bergja á
bezta skal okkur hressing ljá!
Vísindin efla alla dáð,
orkuna styrkja, viljann hvessa,
vonina glæða, hugann hressa,
farsældum vefja lýð og láð;
tífaldar þakkir því ber færa
þeim, sem að guðdóms-eldinn skæra
vakið og glætt og verndað fá
vizkunnar helga fjalli á.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>