- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / I. Ljóðmæli, Smásögur o. fl. /
73

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 73 —

Skrýð þig svo aftur
skrúða gulldregnum,
morgunskrúða
menn gleðjanda;
bú þig að öllu
upp að koma
fagur og fram bruna
í fullu veldi.

Og bjarma breið
á brúnir fjalla,
áður ljósan dag
leiðir á himin;
leng þú blessaðan
blíðu-roða
uppkomu þinnar
og undirgöngu.

Vekur þú von
og vekur þú bæn,
hvenær sem dapri
dimmu hrindir,
og augu kætir
allrar skepnu;
þökk er og lofgjörð
á þinni leið.

Vekur þú von
og vekur þú bæn,
er þú í l.ióma
líður af himni,
aftur í Ijóma
upp að renna;
þökk er og lofgjörð
á þinni leið.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:23:59 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/1/0083.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free