Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 75 —
skoðar lífs leiðir,
lýð allan og tíð;
vakir og vakir,
vinnu sinnir
hrímkalda grímu
sem hagbjartan dag?
Fár gat svo fyrri
Frónbyggja sjón
glætt, að þeir mættu
geima skoða heima;
fár gat svo fyrri
fornra norna
haftböndum sviftan
huga sent á flug.
Fár gåt svo fyrri
fullhugaður bugað
illa villu,
alda-spella gjald.
Legið hefir lygi
og láðbyggja ráð
alla vega spjallað
eitri blend í sveitum.
Fár gåt svo fyrri
fjandann anda
lestan og lostið
lygi brott úr vígi;
hrakti sá, er vakti
meðan hölda fjöld
megindofin sefur,
marghöfðaðan varg.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>