- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / I. Ljóðmæli, Smásögur o. fl. /
90

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 90 —

Nei, eg vil ei hæða hinn
lifanda föður allra anda,
ástina þina, verkin handa,
dýrðina þína, drottinn minn!
Fast eg trúi: Frá oss leið
vinur minn til vænna funda
og verka frægra, sæll að skunda
fullkomnunar fram á skeið.

Djúpt i guðs og mannsins mynd,
alið sem að ungbarn þiggur,
eilifur gneisti falinn liggur,
ef að hann kæfir ekki synd.
Sannlega, veit eg, syndgar hver;
þó eru nokkrir, Kristi krossi
og kenning studdir, andans hnossi
vaxnir — og Tómas vist það er.

En þá fósturfoldin hans!
Hvi vill drottinn dýrðarríkur
duftinu varpi jafnskjótt slikur
andi hennar mesta manns?
Hvi vill drottinn þola það,
landið svipta svo og reyna,
svipta það einmitt þessum eina,
er svo margra stóð í stað?

Efa, maður, ei það ráð.
Eitt eg veit um alla vegu
alheims speki dásamlegu:
Þeir eru einskær ást og náð.
Felum drottins föðurhönd
harma vora og hjartaþunga, —
hann á sjálfur gamla og unga,
frjáls að leysa líkams-bönd.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:23:59 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/1/0100.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free