Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 91 —
Veit eg og, hans verða spor;
svo þótt Tómas frá oss færi,
fullvel er það sem hann væri
enn þá mitt á meðal vor;
lengi mun hans lifa rödd,
hrein og djörf, um hæðir, lautir,
húsin öll og víðar brautir,
er Isafold er illa stödd.
Sú er hin mikla blessan bezt
allra þeirra, er meira megna
en munninn fylla og sinu gegna,
að þegar þeir deyja, þá er hún mest.
Hver, sem vinnur landi og lýð,
treysta skal, að öll hans iðja
alt hið góða nái styðja
þess fyrir hönd, er hóf hann stríð.
Sízt vil eg tala um svefn við þig;
þreyttum anda er þægt að blunda
og þannig bíða sælli funda; —
það kemur ekki mál við mig.
Flýt þér, vinur, í fegra heim;
krjúptu að fótum friðarboðans
og fljúgðu á vængjum morgunroðans
meira að starfa guðs um geim.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>