- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / I. Ljóðmæli, Smásögur o. fl. /
96

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 96 —
ALDARHÁTTUR.

(KveSið á reitS fyrir neöan Fróöá).

Hingað gekk hetjan unga*)
heiðar um brattar leiðir,
fanna mundar að finna
fríða grund í hríð stundum;
nú ræðst enginn á engi
(j ástarbáli fyr sálast),
styttubands storð að hitta,
stýrir priks yfir mýri.

Á GÖMLU LEIÐI.
1841.

Fundanna skært í ljós burt leið;
blundar hér vært á beði moldar,
blessaðar fært á náðir foldar,
barnið þitt sært. Ó, beizka neyð!

Sofið er ástar-augað þitt,
sem aldrei brást að mætti mínu;
mest hef ég dázt að brosi þínu,
andi þinn sást þar allt með sitt.

Stirðnuð er haga höndin þín,
gjörð til að laga allt úr öllu,
eins létt og draga hvítt á völlu
smámeyjar fagur-spunnið lín.

*) Björn Breiövíkinga-kappi.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:23:59 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/1/0106.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free